Skinfaxi - 01.12.1989, Page 26
Gamlar myndir
Guðjón Ingimundarson
Fráfyrsta Landsmótinu, 1911 íReykjavíkjjórum árum eftir að UMFI var stofnað.
Skinfaxi, tímarit U ngmennafélags
Islands, hefur nú komið út í 80 ár
samfellt. Það er út af fyrir sig
þrekvirki. I upphafsgreinritsinsárið
1909, „Til ungmennafélaga íslands”
segir svo meðal annars: „Nú vill
Skinfaxi reyna að lyfta undir bagga
með ungmennafélögunum og reyna
af öllum mætti að bæta úr því, sem
mest er ábótavant í starfi þeirra.
Tengja saman félögin í sterka,
starfandi heild. Hvetja og stæla dug
og afl til dáða.”
Spyrjamá; hefurþettatekist? Mitt
svar er jákvætt. Skinfaxi hefur verið
félögunum hvatning og tengt þau
saman til félagslegra átaka og
framkvæmdaáýmsumsviðum. Það
er mín skoðun að hann hafi einnig,
einkum á fyrstu áratugunum, verið
mikilsverður aflgjafi í íslensku
þjóðfélagi og ýtt af stað
margháttuðum þjóðfélags-
brey tingum og menningarstraumum
til framfara. Ég óska Skinfaxa til
Guðjón
Ingimundarson,
formaður UMSS og
stjórnarmaður í UMFÍ í
tugi ára sendir
Skinfaxa kveðju og
segir nokkrar sögur frá
kynnum sínum af
ungmennafélags-
hreyfingunni
„Skinfaxi hefur
verið félögunum
hvatning og tengt
þau saman til
félagslegra átaka
og framkvæmda á
ýmsum sviðum."
hamingju með 80 ára afmælið og
vænti þess að hann megi á komandi
árum þjóna ungmennafélögunum og
framfaramálum þjóðarinnar á sama
hátt og á liðnum árum.
Það er sjálfsagt sameiginlegt með
flestum kynslóðum, að þær telja sig
hafa lifað meiri breytinga- og
framfaraskeiðennokkurönnur. Svo
er og með mig og trúlega mína
kynslóð. Svo hafa breytingarnar í
þjóðfélaginu verið stórstígar síðustu
áratugina. Þátttaáka mín í
ungmennafélagshreyfingunni er
orðin æði löng; um 30 ára
formennska í héraðssambandi og 18
ára aðild að stjórn UMFI skilur
auðvitað eftir eitthvað af myndum
og minningum. Þær komast ekki
allar á blað í stuttri grein.
26
Skinfaxi