Skinfaxi - 01.12.1989, Qupperneq 31
Það voru stoltir Mosfellsbæingar
sem gengu í skrúðgöngu inn á
íþróttavöll sinn þann 23. september
síðastliðinn. Fánarvoru á lofti, ræður
voru haldnar og forseti bæjarstjómar
Mosfellsbæjar, Magnús Sigsteins-
son, sagði í ræðu sinni þegar hann
vígði völlinnað V/ö/??í«rvö//í/rskyldi
hann heita. Þar að auki var þetta á
80. áraafmælisári félagsins í bænum,
ungmennafélagsins Aftureldingar.
Þetta var ólíkt glæsilegri völlur
en sá sem félagar í Ungmenna-
félaginu Aftureldingu héldu mót á
árið 1911 ogsagterfráhérviðhliðina.
Félagið var þá tveggja ára en í
Þá var hlaupið á mjúku grasi, nú er hlaupið á þar til gerðu gerviefni sem
almenningur kann vart að nefna hið rétta heiti á. Hér má sjáfremsta formann
félagsins, Guðhjörgu Pétursdóttur, líta eftirþvíað hæjarstjóri Mosfellsbœjar
ogforseti bœjarstjórnar og fleir bæjarbúar geri þetta nú allt rétt.
...og eftir 80 ár...
Varmárvöllur
Tæplega 80 ár eru liðin
síðan orðin hér til hliðar
voru sett saman þegar
Aftureldingarmenn vígja
Varmárvöll, íþróttavöll
sem er nokkru fullkomnari
en grasflatirnar við
Kollafjörð...
september var það orðið 80 ára. Og
í tilefni þess var þennan dag, 23.
september haldið Afmælismót Umf.
Aftureldingar í Mosfellsbæ á hinum
nýja velli.
Þetta var fyrst og fremst
hlaupamót, af 17 greinum voru 12
hlaupagreinar. Ekki varmótiðmjög
stórt eða umfangsmikið þar sem
komið var fram í september og
keppnistímabilinu svo til lokið
utanhúss. Ekki mættu allir til leiks
sem höfðu skráð sig, best mætingin
var í yngri aldurshópunum og var
Hér kemur Karen Axelsdóttir, Umf. Aftureldingu, fyrst í mark í 100 m hlaupi
telpna á 14,3 sek. Þó að árið 1911 hafi formaður félagsins verið kona, „...um
stundarsakir..." voru engarstúlkur íkeppni. Það þótti baraekki við hæfi! En
það var nú þá.
Skinfaxi
31