Skinfaxi - 01.12.1989, Blaðsíða 43
Slappað afísól og sumaryl, ekkiþingeyskri sól heldurþýskri. Myndin ertekin
íhinni vel heppnuðuferðfrjálsíþróttafólks til Vestur -Þýskalands síðasta vor.
Önnur slík mun vera í bígerð.
að halda uppi „gömlum stjömum”
sambandsins heldur byrja frá grunni,
leita til þeirra yngstu og byggja upp
með þeim á skipulegan hátt góðan
hóp frjálsíþróttafólks.
Unglingastarfið
fékk forgang
Það var sem sagt ákveðið að leggja
megin áherslu á barna- og
unglingastarfið. Það var að
sjálfsögðu ekki nein ný hugsun en
hafði ekki verið í 1. sæti á
verkefnalistanum. I þessu sambandi
var hugað að því að fjölga mótum
fyrir krakkana og öðru slíku. Þetta
hefur tekið tíma og það hefur verið
frekar hljótt um okkur til þessa en
vonandi tekst að halda áfram þessu
starfi.”
-Það var frjálsíþróttaráð undir
forystu Haralds Þórarinssonar sem
tók þessar ákvarðanir fyrir nokkrum
árum. Haraldur er nú fluttur suður
yfir heiðar og býr búi á
Laugardælum, skammt frá Selfossi.
En Gunnar Jóhannesson tók við
formennsku í frjálsíþróttaráði og þeir
sem áfram störfuðu að þessum
málefnum héldu uppi sömu stefnu.
Núna stýrir Anna Mkaelsdóttir
ráðinu.
„Fólk eins og Ágústa Pálsdóttir,
Sigurbjörn Ágústsson og fleiri og
fleiri voru á 10 til 11 ára aldrinum á
þessum tíma”, segir Gunnar „þegar
þetta uppbyggingarstarf hófst.
Eitthvað hefur kvamast úr þessum
hóp en ekki mikið og einhverjir hafa
bæst við.
Þessi áhersla á barna- og
unglingastarfið er meginástæðan
fyrir árangrinum, það þurfti auðvitað
ákveðið þolgæði til að halda þessu
starfi gangandi því það næst ekki
slíkur árangur ánokkrum mánuðum.
Þetta er margra ára vinna en ánægjan
af því að starfa með þessum góða og
samstæða hópi eru ágætis laun.
Síðan kom auðvitað Landsmót
UMFÍ á Húsavík "87 og það hélt
áhuganum við. Svo má sjálfsagt
nefna þá aðstöðu sem er á Laugum,
þó svo hér vanti reyndar enn
fullbúinnfrjálsíþróttavöll. Aðstaðan
er sjálfsagt svipuð því sem gengur
og gerist en hefur kannski eitt fram
yfir margar aðrar „íþrótta-
miðstöðvar”. Laugar eru miðstöð í
héraðinu í ýmsum skilningi, hér er
mikil og gróin hefð fyrir
uppeldisstarfi, í íþróttum sem í öðru.
Það gerir Laugar sérstakar.
Þá höfum við bryddað upp á
vissum nýj ungum undanfarin ár. Þar
má nefna áherslu okkar á
æfingabúðir. Við höfum auk þess
fjölgað mótum yfir veturinn. Þau
hafa orðið fleiri en gengur og gerist.
Svo höfum við alltaf verið vakandi
fyrir því að breyta fyrirkomulaginu
ef okkur hefur fundist eitthvað ekki
nógu gott. Oft er það að fólk í svona
starfi er mjög hikandi við að gera
breytingar á slæmu fyrirkomulagi.
Við höfum reynt að gæta þess að láta
slíktekkihendaokkur. Aðsjálfsögðu
eru þó alltaf til mismunandi skoðanir
á hlutunum.”
Sérhæfö
íþróttabraut
Laugar í S-Þingeyjarsýslu hafa
löngum verið eitt helsta skólasetur
Þingeyinga, frá þeim tíma er
ungmennafélögin ásamt fleirum áttu
sinn þátt í að stofna Alþýðuskólann
á Laugum sem síðar varð
Héraðsskólinn og nú reyndar
Framhaldsskólinn á Laugum. Eins
og margir vita hafa héraðsskólamir
átt undir högg að sækja í
fj ölbrautaskólakerfinu. Þingey ingar
sækja það hins vegar fast að hann
verði áfram menntasetur með þeim
hætti sem hann hefur verið.
Gunnar segir að ef svo á að verða
sé nauðsynlegt að skólinn bregðist
við nýjum aðstæðum. „Að þessu
hefur verið unnið undanfarið og það
er litið til íþróttanna sem
uppeldistækis, sem einnar af
nýjungunum. Það er verið að vinna
þeirri hugmynd fy lgis í
menntamálaráðuney tinu og víðar að
á Laugum verði komið á öðruvísi
námi en menn þekkja í dag.
Hugmyndin er að koma upp nokkuð
sérhæfðri íþróttadeild við
framhaldsskólann. í þessari nýju
deild sem væri nám í 3 ár, væri gert
ráð fyrir því að nemendur störfuðu
milli 2. og 3. árs sem leiðbeinendur
hjá ungmenna- og íþróttafélögum,
þóundirleiðsögn. Þaðhefureinmitt
verið leitað til HSÞ með að hafa
milligöngu varðandi þessa
leiðbeinendur. Hugmyndin er að
þessi 3 ár dugi til að komast inn í
íþróttakennaraskólann á Laugar-
vatni, nemendur verði á þessum 3
árum búnir að fá þá
undirstöðumenntun sem dugi til
náms á Laugarvatni og verði jafnvel
betur undirbúnir fyrir nám til
íþróttakennaraprófs. Auk þess sem
hér hefur verið nefnt eru uppi
hugmyndir um fleiri nýjar deildir.
Auk þess að koma Laugaskóla og
HSÞ vel er þetta auðvitað geysilega
mikilvægt fyrir alla byggð á þessu
svæði”, sagði Gunnar að lokum.
IH
Skinfaxi
43