Skinfaxi - 01.12.1989, Page 59
Gotthjáþessariunguhnátu. Í200m
fjórsundi stráka synti Halldór
Sveinsson, Þrótti á tímanum 2:45,5
og bætti met bróður síns Jóhanns um
tæpar 9 sekúndur. Einnig sigraði
Halldórí lOOmskriðsundinuánýju
meti 1:06,4 mín. og í 50 m
flugsundinu bætti hann metið um
tæpar 3 sek. eða úr 34,6 í 32,2 sek.
í 50 m baksundi hnokka synti Einar
Ólafsson, Huginn á65,5 sek. í 100
m baksundi stráka vann nú Jóhann
Sveinsson bróðir sinn Halldór á
nýjumeti, l:21,0,enfyrrametið átti
Jóhann sem var 1:21,8 mín.
Auk þessara krakka voru margir
sem voru rétt við fyrri met og verður
gaman að fy lgjast með þeim á næstu
árum svo fremi að þau æfi vel. Þama
á ég við stelpurnar frá Val,
Reyðarfirði eins og íris Sigur-
bjömsdóttir og Stellu Mjöll Aðal-
steinsdóttur, Sigrúnu Ferdinands-
dóttur, Telmu Ríkharðsdóttur, V aldís
Jónsdóttur og Þómnni Stefánsdóttur.
.Þróttar strákarnir Guðjón Gunnars-
son, Magnús Jónsson og Benedikt
Ólafsson þurfa ekki mikið að bæta
við sig æfingum til að ná enn lengra
en nú er.
„Er greinilegt aö
leiðbeinendur
þeirra hafa lagt
ríka áherslu á gott
sund og löglegt.
Alls var keppt í
37 greinum og
voru um 200
skráningar meö
um 65
þátttakendur. Sett
voru 10
Austurlandsmet í
unglingaflokkum."
Frásögn af
Austurlandsmótinu í
sundi síðasta sumar.
Slæm aðstaða
Þegar litið er yfir þetta
Austurlandsmót er greinilegt að
sundaðstaða fyrirkrakka og unglinga
er frekar döpur og á ég þá aðallega
viðþað, aðlaugamareruekkiopnar
nema örfáa mánuði á ári. Æfingar
verða því ekki eins markvissar og
áhuginn dvínar. Það er því
aðdáunarvert hvað forystulið í
sundinu leggur á sig til að halda við
þessari grónu íþrótt við erfiðar
aðstæður. Sveitarstjómarmenn á
Austurlandi mættu svo sannarlega
koma meira til móts við þetta fólk og
styðja það við sín störf. Þvíhvaðer
betra fyrir eitt sveitarfélag en að eiga
áhugasama einstaklinga sem vinna
svo óeigingjarnt starf í
heimabyggðinni fyrir börn og
unglinga á staðnum.
Hörður S.Óskarsson.
Höfum aukið úrval verðlaunagripa
Við óskum íþróttafólki um land allt gleðilegra jóla og farsœls komandi árs.
Skinfaxi
59