Skinfaxi - 01.12.1989, Page 64
Hvenœr verður slysið?
Þeir sem koma inn í vélasal íslenskrar Getspár í kjallara
íþróttamiöstöövar ÍSÍ í Laugardal í Reykjavík gera sér strax grein fyrir því
hvaö Getspárfólk á viö þegar þaö segir aö þaö búi viö allt of lítiö húsnæöi
Sigurður Ragnarsson, yfir-
tölvari, segir að það geti næstum
hvenær sem er orðið slys sem geti
kostað eignaraðila íslenskrar Getspár
tugi milljóna króna.
Skinfaxi ræddi þessi mál nánar
við Sigurð. Fyrst var hann spurður
almennt um starfið við
tækjabúnaðinn.
„Við erum með vaktir frá
klukkan átta á morgnana til tvö á
nætumar. Það eru sex manns sem
taka þessar vaktir.”
-Á veggjum stjómherbergisins
eru kort yfir landið og annað kort
yfir Stór-Reykjavíkursvæðið sem
sýna hvar sölukassar eru staðsettir
og hvaða svæði eru tengd saman
með símalínum.
Beina tengingin
„Við fáum mikið af hringingum
inn frá söluaðilum”, segir Sigurður,
„þar sem þeir biðja um einhvers
konar aðstoð og með hjálp
tölvukerfisins erum við í beinu
sambandi við h vem einasta sölukassa
á landinu og höfum margs konar
yfirlit yfir allar aðgerðir í hverjum
kassa fyrir sig.” Þessu til útskýringar
bendir Sigurður á einn tölvuskjáinn.
„Hér erum við t.d. með kassann
í Skaftárskála á Kirkjubæjarkaustri.
Við getum séð á skjánum hverja
brey tingu sem verður í sölu lottómiða
um leið og hún á sér stað á Klaustri.
Við getum fengið uppgefið hversu
margar raðir er búið að selja,
upphæðina, hversu margir ógildir
seðlar fóm í kassann og þannig mætti
lengi telja.”
Sigurður útskýrir nú í stómm
dráttum hvemig kerfið vinnur hjá
þeim. I herbergi inn af
stjómherberginu má sjá í gegnum
stóran glerglugga í aðaltöl vumar sem
eru mikil tæki.
„Þetta eru tæki upp á tugi
milljóna króna og einu sinni munaði
engu að vatn læki beint niður í þau af
hæðinni fyrir ofan. Það bjargaðist
en ekki munaði miklu að stórskaði
herbergin hér og það var mikil heppni
að ekki fór illa.
Þegar maður vinnur hér og
gjörþekkir aðstæður finnst manni
sumar röksemdir heldur veigalitlar
fyrirgagnrýni áþáákvörðun að flytja
starfsemina í nýtt húsnæði.”
Vanþekking
Sigurður er spurður um álit hans
á þeim umræðum sem verið hafa í
gangi um kaup á húsnæði fyrir
Islenska Getspá og hann vísar til.
Það er greinilegt á svömm hans að
honum finnst sú umræða ekki með
öllu eðlileg.
„Gagnrýnin hefurfyrst og fremst
einkennst af mikilli vanþekkingu á
aðstæðum hér á bæ. Fólk heyrir að
fyrirtæki í eigu samtaka sem ná um
allt landið ætli sér að fara að byggja
yfir sig í Reykjavík og sér þetta sem
enn eina stórhöllina. Þetta fólk segir
að það sé til nóg af húsnæði í
annað hús og flytja inn í það. Frá
þessum sjónarhóli er ósköp eðlilegt
að gagnrýna húsbygginguna. En
málið er ekki svona einfalt. Ef fólk
vill eyða meiri pening í að breyta
húsnæði svo það henti okkar
starfsemi heldur en að byggja hús,
þá er það allt í lagi. Eg er samt
hræddur um að það yrði ekki talið
mjög skynsamlegt á endanum þegar
allar kostnaðartölur varðandi
nauðsynlegar breytingar á slíku
húsnæði lægju fyrir.
Svo er viðtal við fasteignasala í
fjölmiðlum sem segist hafa húsnæði
á Akureyri fyrir Islenska Getspá.
Hvað ætli það myndi kosta mikið að
færa alla aðstöðu Getspárinnar til
64
Skinfaxi