Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1989, Page 72

Skinfaxi - 01.12.1989, Page 72
Nýbók Um uppeldi Um uppeldi. Höfundur: Guðmundur Hjaltason. Utgefandi: Frjálst Framtak. Rvk. 1989. Dr. Bragi Jósepsson, bjó undir prentun, skrifaði formála og skýringar. Guömundur Hjaltason, einn af fyrstu ritstjórum Skinfaxa og formaður UMFÍ gaf út mikið lesmál um sína daga auk þess sem hann ferðaðist um landið á vegum UMFÍ og hélt fræðslufyrirlestraum hin ólíklegustu efni. Nú hefur ett ritverka hans verið gefið út og Þorsteinn Einarsson, fyrrverandi íþróttafulltrúi ríkisins segir frá bókinni og Guðmundi. Tilviljun og hún hugstæð, að er ég hóf ritgerð um hvað Skinfaxi, tímarit UMFÍ hefur verið íþróttalífi þjóðarinnar, flytur Morgunblaðið frétt um að út sé komin á vegum tímritaútgáfunnar, Frjálst Framtak, bókin „Um uppeldi”. Höfundur hennar er Guðmundur Hjaltason, sem varannartveggjafyrstu ritstjóra Skinfaxa, 1909-1911. Hjóm eitt er vart textinn áttatíu ára gamall, úr því kennslufræðingur með doktorsgráðu í fræðunum, dr. Guðmundur Hjaltason. Bragi Jósepsson, lektor við Kennaraháskóla Islands sá ástæðu til að koma á framfæri kenningum Guðmundar, ritstjóra Skinfaxa og farandfyrirlesara UMFÍ í ellefu ár, um uppeldi bama. Guðmundursækir stoðir kenningum sínum í kristna siðfræði og menningarhefðir íslenskar og skandinavískar. Dr. Bragi og útgefendur bókarinnar eiga hið minnsta skilið góðar þakkir fyrir sóma sýndum Guðmundi og ræktarsemi við störf hans. Tíu síðustu æfiárunum varði Guðmundur í þágu ungmennafélaganna. Hann heimsótti félaga þeirra um allt land og hafði flutt þeim um 1100 fyrirlestra árið 1919, er hann lést. Mörg sporin hefur hann orðið að stíga, og þau einkum að vetarlagi, til þess að færa fróðleik á tímum fárra fjölmiðla. Dr. Kristinn Guðmundsson, utanríkisráðaherra og síðar sendiherra í London og Moskvu var uppalinn íRauðasandshreppi þarsem Umf. Von starfaði. Dr. Kristinn ritaði endurminningar sínar og minnist þar á komur Guðmundar í þessa afskekktu heimabyggð sína: „Ég fékk tvívegis að hlusta á hann, og mér líður seint úr minni, hve mælskurhannvar. Hanntókólíkustu efni til meðferðar. Hann talaði meðal annars um Múhameð í öðru þeirra erinda,erégheyrði. Égmundilengi margt af því sem hann sagði um Múhameð þótt ég væri kornungur á þessum tíma.” Fleirum urðu ógleymanleg kynni við Guðmund, hafa orð á hjartahlýju hans, góðseminni sem skein úr sérkennilega björtum augum hans og hins fágaða góða máls sem hann beitti við flutning erinda sinna. Guðmundur var borgfirðingur, fæddur 1853. Við nám erlendis var hann 1875-'84. Heimkominn vann hann að kennslu. Gerði á þremur stöðum tilraunir með að starfrækja lýðskóla. Áárunum 1903-’08dvaldi hann í Danmörku, flutti þá um 600 fyrirlestra í æskulýðsfélögum og skólum. Eftir hann liggja greinar í blöðum og tímaritum, hér og erlendis. Endurminningarhafðihann lokið við er hann lést. Ungmennafélögin gáfu þær út árið 1923. Guðmundur kvæntist árið 1897 Hólmfríði M. Bjömsdóttur (1870-1948). Börn þeirra urðu tvær dætur og sonur, sem lést í frumbernsku. Ungmennafélögum mun enn kunnur fyrsti fræðslustjóri ISI, Jóhannes Sæmundsson, íþróttakennari við MR, sem lést á besta aldri 1982, en hann er dóttursonur Guðmundar. Þorsteinn Einarsson. 72 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.