Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Page 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Page 24
bæði hægt að draga á einum bát eða tveimur, en æskilegt er að sér- stakt skip dæli olíunni upp en það er ekki nauðsynlegt. Troll þetta nýtir sér þá eiginleika olíunnar að fljóta ofaná sjónum. Eins og skýr- ingarmyndin ber með sér flyst olían aftur eftir trollinu og aftur í pokann hvaðan henni er dælt upp en sjórinn berst út úr trollinu. Þær tilraunir með að safna saman olíu með svona trolli hafa sýnt mjög jákvæðar niðurstöður. Þá var dælt 30 tonnum af olíublönduðum sjó í hafið á hálftíma. Eftir að trollið hafði verið dregið yfir svæðið var nær engin olía eftir. O. Mustad & Sön A/S sýndu ma. „autoline system“ en þessi búnaður hefur að sögn talsmanna fyrirtækisins reynst miður vel á íslandi. En búnaðurinn hefur gefið góða raun í Noregi og Færeyjum. Búnaður þessi er í sí- felldri þróun og var mér tjáð að nú væri ætlunin að hefja nýja sókn á íslandi og reyna að komast fyrir þá galla sem komið hafa upp á þar. Annars var mér sýnd ný gerð af línu sem tekin hefur verið í notkun á íslandi. Lína þessi er ætluð í línuveiðar þar sem þær eru stund- aðar á venjulegan máta. Lína þessi er kölluð roto-line. Línan sjálf er úr nyloni en á hana er settur „rotor“ sem er samsettur úr ytra og innra hulstri. Innra hulstrið situr fast á línunni (sjá mynd). Pinninn Rotoline. 24 getur síðan sveiflast fram og til baka og snúist um eigin ás, en ytra hulstrið getur snúist á línunni. Helstu kostir þessarar línu eru þeir að „rotorinn" situr fastur á línunni þannig að slit á línunni sjálfri minnkar. Einnig er það talinn stór kostur að pinninn liggur samhliða línunni við drátt. „Rotorinn" er úr ryðfrýju stáli og er fullyrt að „rotorinn“ endist svo lengi sem línan endist þannig að ekki þyrfti að setja inn nýja „rotora“. A/S Fiskeriautomatikk er fyrir- tæki sem sérhæft hefur sig í fram- leiðslu á sjálfvirkum handfæra- rúllum. Fyrirtækið hóf fram- leiðslu á rúllum fyrir um 15 árum síðan og er framleiðsla fyrirtækis- ins vel þekkt. Fyrirtækið sýndi á sýningunni alsjálfvirkan útbúnað til smokkfiskveiða. Útbúnaðurinn er tengdur þeim rúllum sem fyrir- tækið hefur framleitt. Útbúnaður þessi er þannig úr garði gerður að það er óþarfi að koma við smokk- fiskinn eða krókana á veiðunum sjálfum. Fiskileitar- og siglingartæki Simrad A/S, einn stærsti fram- leiðandi fiskleitar- og siglinga- tækja í heiminum og jafnframt Nor-Fishing einn stærsti sýningaraðilinn, hafði fjölda tækja til sýnis. Þeir sýndu þó ekki neitt nýtt frá Kaup- mannahafnarsýningunni en margt áhugaverðra gripa sýndu þeir. SIFS þ.e. Simrads Integrerte Fiskeletingssystem eða sem kalla mætti á íslensku heildarsamsöfn- unarfiskileitarbúnaður Simrads er nú í reynd fullhannaður. I stjórn- borði brúarinnar hefur skipstjór- inn stóran litasjónvarpsskerm (CRT) og fullkomið stjórnborð. Hér fær skipstjórinn lifandi mynd af ástandinu neðansjávar, bæði þvert og framundan/afturundan, skipinu. Fram á skerminn koma stærð fiskitorfu, botn, veiðarfærið og skipið. Öllum upplýsingum er safnað sjálfvirkt saman frá marg- geislatrollsonar, dýptarmæli, trollindikator og höfuðlínumæli. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.