Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Blaðsíða 28
Nýr radar frá Atlas
Á sýningunni í Europort ’79
sem haldin var í Amsterdam í
Hollandi, sýndi Krupp Atlas—
elektronik nýjan radar. RA
Radarinn hefur tegundarheitið
Atlas 8500 og er svo nefndur anti-
collision (gegn árekstri) radar.
Velja má um afstæða hreyfingu
(stefnulínan stöðugt á en radar-
myndin færist við stefnubreyting-
ar), sanna hreyfingu (true motion,
eigið skip færist yfir skjáinn en
radarmyndin er kyrr) og sjálfvirka
árekstrar aðvörun (automatic col-
lision avoidance). Avoidance
þýðir eiginlega að komast hjá á
einhverju — í þessu tilfelli
árekstri. En þar sem tækið gefur
aðeins til kynna að hætta sé á
árekstri og skipstjórnarmaðurinn
verður síðan að sjá framhaldið
nota ég orðið aðvörun í fyrir
avoidance.
Radarinn er tölvustýrður og
sýnir leiðir endurvarpanna yfir
skjáinn. Sé þess óskað gefur tölv-
an upplýsingar um stefnuhraða,
fjarlægð og miðun, og hver verði
að óbreyttu minnsta fjarlægð
(CPA) til eigin skips og hvenær
það verði (ICA). Hún getur tekið
allt að 20 endurvörp til vinnslu í
einu.
Athygli vekur að hægt er að
sitja við tækið án þess að reka
fæturnar í. Áfast radartækinu er
borð fyrir sjókortið nokkuð, sem
hingað til hefur ekki sést á með
svona tækjum, en þó að mínum
dómi bráðnauðsynlegt. Umboðið
hér á landi, Kristinn Gunnarsson
& Co., Grandagarði 7, fullyrðir að
þetta sé eini radarinn í heiminum
þar sem hægt er að sitja eða
standa við og hafa þó jafngóða
yfirsýn. Að því er umboðið segir
eru Norðmenn nú að setja svona
radar í gæsluskip sín.
Atlas 8500 10 cm (S band) rad-
arinn kostar 44.000.000 króna, en
3 cm (X band) kostar 41.000.000
króna.
Sex endurvörp sjást á skjánum. Fimm
þeirra eru á ferð en eitt kyrrstætt.
Grennri línan sýnirhvaða leið þau hafa
farið en sú sverari stefnu þeirra í
augnablikinu.
Atlas 8500. Tækið stillt á true motion. Takið eftir hve vel sést á Hér sést vel hvemig kortinu er komið fyrir.
skjáinn þótt full dagsbirta sé.
28
VÍKINGUR