Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Side 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Side 39
Ragnar Þorsteinsson: Jól í hafl Það var síðla árs 1932 eða nán- ar tiltekið þremur dögum fyrir aðfangadag. Ég var stýrimaður á tvö hundruð smálesta fiskiskipi, sem stundaði línuveiðar á svæðinu frá Reykjanesi og norður í Kollu- Ragnar Þorsteinsson, höf- undur þessarar frásagnar, var í fjölmörg ár sjómaður, og skipstjóri á bæði togur- um og bátum. Árið 1943 keypti hann Höfðabrekku í Mýrdal og bjó þar í 25 ár. Síðastliðin 11 ár hefurhann starfað í Seðlabankanum. Ragnar hefur gefið út alls 10 bækur, skáldsögur og barnabækur, auk þess sem f jölmörg ljóð og sögur hafa birst eftir hann í tímaritum, þar á meðal í Víkingnum. ál. Við ísuðum í skipið og vorum ný komnir inn til Reykjavíkur með tvö þúsund körfur. Við vorum áður búnir að sigla eina ferð til Englands og höfðum landað í Aberdeen. Skipstjórinn kom nú að máli við mig og kvaðst nauðsynlega þurfa að fá sér frí og spurði hvort ég vildi sigla fyrir sig sem skipstjóri þenn- an túr, þaðm ætti að landa í Húll. Nú hafði ég ekki siglt til Englands nema þessa einu ferð og aðeins til Aberdeen. Að vísu var ég nýbúinn að fá skipstjórnarréttindi og mátti því skrá skipshöfn á skip. Skip- stjóri lofaði að útvega stýrimann, en við áttum að fara út um kvöld- ið. Það urðu engin vandkvæði á að ráða stýrimann, því að margir voru atvinnulausir um þessar mundir. Kreppan skollin á með fullum þunga og margir útgerðar- menn börðust í bökkum eða höfðu lagt upp laupana. Stýrimaðurinn var því ekki valinn af verri end- anum, alkunnur siglingamaður og hafði verið skipstjóri á Gottu í sauðnautaleiðangrinum til Græn- lands um tveimur árum fyrr. Ég fann strax til öryggiskenndar með svona vanan mann og hugði gott til. Við létum úr höfn á þeim tíma, sem ég hafði tiltekið. Það var að syrta að með él og ég sá ekki betur en að hann væri að ganga í suð- vestan rudda. Ég fór því ekki niður fyrr en komið var suður úr Húll- inu. Ég setti stefnu á Stórhöfða- vitann og fór svo niður og bað að vekja mig ef veður versnaði. Nú gerði rok um tíma og stórsjó en ekki var ég vakinn. Skipið var afburða sjóskip, á lensi og á hlið. Það var hvalbakslaust og vildi sullast yfir það að framan full- hlaðið í mótvindi og miklum sjó. Ég kom á vakt kl. 4 um nótt- ina og var vindur heldur genginn niður en haugasjór. í þennan tíma voru siglingatæki á þessari tegund skipa ekki margbrotin. Það voru tveir áttavitar, vegmælirinn eða loggið og sjókort. Þá hafði ég rekið mig á sextant í skáp í skipstjóra klefanum. Þar með voru tækin upptalin. Engin talstöð, engin dýptarmælir. Um klukkan sjö um morguninn áttum við eftir logginu að fara að sjá Stórhöfða vitann. É1 voru mjög þétt og ekki sást vitinn. Ég sigldi enn í fimm sjómílur, en vitinn sást ekki að heldur. Ég þorði ekki að halda áfram í sundið, svo að segja alveg blindandi. Ég hægði því á og hélt uppí með hægri ferð. Mér fannst heldur ekki fýsilegt að'sigla á móti og út fyrir sker í þessum hroða. Hann dúraði nú dálítið en náði sér því betur upp með sjóinn. Við vorum þrír í brúnni og ég stóð við brúarglugga bakborðsmegin, ef ég skildi sjá vitann. Allt í einu gein við okkur himinhá alda. Ég skellti aftur glugganum, stökk yfir að pólkom- pásnum og hélt mér í hann og sagði hásetunum að beygja sig vel niður. f sama bili datt skipið niður að framan svo snöggt að brotið kom ekki við framhluta þess en lenti með fullum þunga á brúnni og mest á efri hluta hennar. Allir gluggar í brúnni að frafnan fóru í mask aftur í þil. Hurðin aftur úr brúnni brotnaði í smátt og áttavit- inn í þaki brúarinnar skall niður í gólf, rétt aftan við hausinn á mér. VÍKINGUR 39

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.