Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Side 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Side 45
eiginlega sjá?“, hraut út úr kynd- aranum sem var á vakt með honum. Fyrsti vélstjóri horfði á hann með fyrirlitningu og við- bjóði, eins og hann væri meindýr af verstu tegund. „Hvað ætla að þú skilja það bölvaður aumingann, kominn af þrælar. Ég er fannen stege mig, bara að sjá om ikke er paa karto- flerne brunede fladlús í pung- fede.“ Engum stökk bros, menn voru orðnir svo vanir þessum væringum milli matsveins og fyrsta vélstjóra að við vorum hættir að taka eftir því. Sumir voru líka í vafa um að þessi danskættaði aðalsmaður meinti það sem hann sagði um matsveininn, því að þeir voru strax orðnir perluvinir þegar á land var komið. Alltaf var að bætast á borðið, sulta, sinnep, rauðbeður og maltöl í könnu. Það var farið koma vatn í munninn á okkur þegar mat- sveinninn sagði okkur að gera svo vel, og þá var hraustlega tekið til matar síns. Á eftir átti að vera smjörgrautur með hindberjasafti út á. Saftin var geymd aftur á hekki. Hún var í stórum glerbrúsa með víðum stút og trétappa í. Kyndarinn var fyrstur að ljúka við kjötið og skammtaði sér sjálfur grautinn. Saftin var í tveggja lítra könnu á borðinu og hann hellti ríflega útá. Næstur var fyrsti vél- stjóri og sparaði ekki saftina, enda sælkeri mikill. Vélstjórinn, sem sat á móti mér, tók sér nú einnig graut og góðan slurk af saft. Ég var far- inn að strjúka magann og orðinn svo saddur, að ég átti í mestu vandræðum að ákveða hvort ég kæmi meiru í mig. Þá tók ég eftir því að vélstjórinn var alltaf að tína eitthvað út úr sér. Ég hugði fyrst að þetta væru skánir úr grautnum, en þegar loðnar skinnpjötlur birt- ust á diskbarminum, ásamt ótal hárflygsum, fór mér ekki að lítast á blikuna. Að síðustu dró annar vélstjóri út úr sér langan hala og lagði einnig á diskbarminn. Það lá við að innyflin í mér umhverfðust og út úr mér sló svita. Vélstjórinn hafði, á meðan hann át grautinn, starað fram fyrir sig annars hugar og tínt út úr sér eins og hann væri að tína bein úr fiski. En þegar hann ætlaði að standa upp, varð honum litið á diskinn. Hann fór með andlitið alveg niður að þessu góðgæti, sem hann hafði lagt til hliðar og rannsakaði þetta nær- sýnum augum. Síðan tók hann í halann og dinglaði honum nokkr- um sinnum til og frá og tautaði: „Ja hérna, þvílíkt . . .“ Fyrsti vélstjóri og kyndarinn störðu á þetta með hryllingi. 'Meistarinn varð jafnvel orðvana, sem mjög sjaldan kom fyrir. Hann gleymdi meira að segja að bölva ,og þá var nú Bleik brugðið. Annar vélstjóri var að búa sig til að standa upp, til að leysa hinn kyndarann af þegar „Fyrsta“ og kyndara hans lá skyndilega svo mikið á-að komast upp á þilfar, að þeir ýttu öðrum vélstjóra útaf bekknum. Ég var nú orðinn alveg sannfærður um að ég væri full mettur. Matsveinninn var að byrja að þvo upp. Hann hafði aldrei lyst á að borða á daginn en fékk sér venjulega kjöt á nóttunrii, rétt eftir miðnætti um leið og hann fór upp til að pissa. Ég tók hann nú tali og þjónusta við lands- byggðina! Díinccinn skipautgerð RIKISSKIP rikisins Sími: 28822 VÍKINGUR 45

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.