Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Side 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Side 46
spurði hvernig stæði á rottum í saftinni. „Rottum, guð almáttugur. Nú ætli þær hafi ekki bara dottið niður í hana og drukknað, vesa- lingarnir?“, sagði hann með hlut- tekningu. „Hefur þú flöskuna opna?“, spurði ég. „Nei nei, biddu fyrir þér. Tapp- inn var ekki í á Þorláksmessu. Eg hélt að strákarnir hefðu kannski fengið sér sopa og gleymt að setja tappann í, en ég breiddi strax tusku yfir. Er bara ekki hægt að sía það sem eftir er?“ „Ég held að þú ættir að henda kútnum, þú getur keypt annan í Húll“, sagði ég. „Er það nú ekki óþarfa bruðl?“, sagði hann og virtist hneykslaður. Enginn gat verið samviskusamari með annarra eigur en þessi maður, þessi ljúflingur, sem öllum vildi gott gera. „Hafðu mín ráð og hentu kútn- um, eða helltu úr honum ef þú vilt ekki missa ílátið, en bjóddu körl- unum aldrei þessa saft framar", sagði ég ákveðinn. „Jæja“, sagði hann. „Þú tekur þá ábyrgð á því, en ekki veit ég hvað karlinn segir.“ „Já, en nú er ég karlinn“, svar- aði ég. Um nóttina sáum við Sule skerry og mikið var ég feginn. Það hefði verið annað en gaman að lenda á kolvitlausum stað, svona í fyrsta túrnum sem skipstjóri í Englandssiglingu. Við fengum besta veður í gegnum Pentil, en mótstraum. Um kvöldið, út af Aberdeen, skall hann á með ofsa austanveður. Annar hásetinn á minni vakt, gamall og reyndur sjómaður, kom inn í brú og bað mig að tala við sig einslega. Ég fór með honum niður í skipstjóraklefa og spurði hvað honum lægi á hjarta. „Þú . . þú ert nú hérna, dálítið ókunnugur á þessum slóðum og 46 Norðursjórinn er óskaplega vara- samur í þessari átt. Það er ekki sjólag þetta helvíti, þetta er hreint eins og grunnbrot. Ég . . við höf- um verið að ræða þetta og okkur fannst réttast að við færum inn til Aberdeen og lönduðum þar, heldur en æða út í algera tvísýnu. Ég hef fengið hérna vond veður, já manndrápsveður, og mig langar ekki til að lenda í öðru eins. Og þú svona ungur maður, getur þú tekið á þig þá miklu ábyrgð, þegar þér reyndari menn telja hættu á ferðurn?" Ég starði á hann sem steini lostinn. Var mannfjandinn að gera grín að mér? Skyndilega sló þeirri hugsun niður í huga mér að stýrimaðurinn stæði á bak við þetta. Ég hafði haft á tilfinning- unni það sem af var ferðinni, að hann væri á móti mér og þætti hálfgerð lítilsvirðing í því fyrir sig að sigla með svona strákhvolpi sem skipstjóra, en ekki getað fengið minn skipstjóra ofan af því að trúa mér fyrir skipinu. Nú ætl- aði hann að narra mig inn til Aberdeen, þar sem við höfðum fengið lélega sölu túrinn á undan, og láta svo skömmina lenda á mér ef engin sala yrði. Það var ekki um að villast, þetta var prógrammið hjá þeim. En þeim skyldi ekki verða kápan úr því klæðinu. „Heyrðu nú Kaíli minn“, sagði ég. „Mér var sagt að selja í Húll og það ætla ég að gera. Austanrok segir þú, en ert þú ekki búinn að vera lengur á þessu skipi en ég? Jú ég held það. Þú hefur kannski aldrei komist í að hafa storminn á hlið á honum. Jú, ég veit það og við báðir. Nefndu mér eitt dæmi, aðeins eitt, þar sem hann hefur tekið á sig sjó, þegar stormur og stórsjór hafa verið á hlið.“ „Ne .. nei, ég man það að vísu ekki, en-en sjórinn er bara allt öðruvísi hér í Norðursjónum en við íslandsstrendur. Sjórinn er miklu krappari hér og harðari og ekki dytti Englendingum í hug að sigla hér meðfram ströndinni í svona aftökum, á ekki stærra skipi.“ „Já, en nú erum við fslendingar. Ég man ekki betur en ég hafi stöðugt verið að sigla úfinn sjó frá því að ég var smástrákur, og ég er ekki dauður enn. Ætli maður fari fyrr en maður á að fara, eða er það Gamla góða merkið w TRETORN Merki stígvélanna sem sjó- menn þekkja vegna gæð- anna. Fáanleg: Með eða án trésóla. Með eða án karfahlífar Stígvélin sem sérstaklega eru framleidd með þarfir sjómanna fyrir augum. EINKAUMBOÐ JÓN BERGSSON H/F LANGHOLTSVEGI 82 REYKJAVÍK SÍMI36579 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.