Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Side 54

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Side 54
um vissi hið minnsta um þetta ævintýri. Ekki var nú samviskan samt alveg dauð, því að ég var að hugsa um hvort ég ætti ekki að stinga af þegar vagninn stað- næmdist næst. En það varð nú heldur lítið úr því. Þó að andinn væri reiðubúinn, var holdið veikt. Og þegar vagninn staðnæmdist, lét ég leiða mig eins og sauð til slátrunar. Hún leigði herbergi í húsi skammt frá þar sem við fór- um úr vagninum. Við gengum upp einn stiga og ég setti vel á mig húsaskipan alla, minnugur allra þeirra sagna um píur, sem lokk- uðu menn tij, sín í þeim tilgangi einum að ræna þá. Nei, hugsaði ég, þessi er ekki af þeirri tegund. Það var eitthvað kunnuglegt við hana. Mér fannst hún vel geta verið íslensk. Svo gengum við inn í herbergið hennar. Þar var lítið inni nema breitt rúm með nátt- borðum. Ein mynd hékk þar á vegg, hún var af miðaldra manni með snúið yfirvararskegg. Það mátti sjá svo mikinn svip með stúlkunni og þessum manni á myndinni, að ég spurði hvort þetta væri faðir hennar. Hún kinkaði kolli. „Á hann heima hér í Húll?“, spurði ég. Útbúum lyfjakistur fyrir skip og báta. Eigum ávallt tilbúin lyfja- skrín fyrir vinnustaði, bif- reiðar og heimili. INGÓLFS APÓTEK Hafnarstræti 5. Sími 29300 „Nei, hann býr í Dublin, ég er írsk .. “ Nú rann upp ljós fyrir mér og ég skildi hvers vegna mér hafði fundist hún svona geðþekk. Hún var svo nauðalík sumum íslensk- um konum. Hvað skyldu vera margir ættliðir á milli okkar ef við ættum sama forföður? Eflaust tuttugu til þrjátíu. Jæja, ég var staðráðinn í að sofa hjá henni í nótt, hvað sem öllum skyldleika viðvék. „Viltu hátta strax?“, spurði hún. Ég hneigði höfuð til samþykkis. Hún tók ofan af rúminu og af- klæddi sig. Prýðilega vaxin, hugs- aði ég. Herbergið var lítt upphitað og rúmfötin ísköld. Við hjúfruðum okkur hvort að öðru og þegar okkur fór að hitna fórum við að tala saman og ég fór að spyrja hana um æskustöðvarnar. Hefði hún ekki minnt mig á, hefði ég líklega steingleymt erindinu. Hún var ekkert nema samviskusemin og vildi láta mig fá sem mest fyrir aurana mína. Hún hét Eva Wales og hafði dvalið þrjú ár í Húll. Um morguninn fékk hún mér nafn- spjaldið sitt, ef ég skyldi koma aftur til Húll innan skamms. Við kvöddumst með kærleikum en ég hef aldrei séð hana síðan. En mörgum spurningum fékk ég svarað þessa nótt, þótt sumar kæmu dálítið á óvart. Ég upp- götvaði þegar ég kom um borð að Eva hafði stungið mynd af sér í jakkavasa minn. Hún stóð á bað- strönd í baðfötum og brosti við heiminum. Áratugum seinna Allt I lagi, Ólafur í dag færðu enga reikninga. 54 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.