Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Page 55

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Page 55
hefur mér stundum orðið hugsað til þess, hvort hún myndi ennþá brosa framan í þessa illskeyttu veröld, sem engum gefur grið en reynir að troða þá minnimáttar niður í svaðið. Siglingin heim gekk snurðu- laust og ekkert markvert bar til tíðinda. Stýrimaðurinn hvarf fyrstur frá borði og kvaddi hvorki kóng né prest. Fundum okkar bar aldrei saman eftir þetta. Þetta var eflaust heiðursmaður í hvívetna, en fátalaður var hann og engum hef ég kynnst á lífsleiðinni, sem hefur tekið honum fram á því sviði. Enginn fann að kolakaupum mínum enda var skipstjórinn minn slíkur öðlingur að hann hefði varla farið að veita mér ákúrur fyrir þau mistök. Þó að ég ætti eftir að sigla margar ferðir til Englands um ævina, sem skipstjóri, hefur þó þessi fyrsta ferð mín sem slík, orðið mér minnisstæðust. Nopal Mascot. Smíðað árið 1978. Burðargeta 17405 tonn. Bílaflutningaskip, en einnig ætlað til flutninga á öðrum varningi, að því tilskyldu að hægt sé að aka honum um borð. Skipið getur flutt 5500 bíia í einu. skíp ekkí fyrir augað Nútíma Virðum fyrir okkur þessar tvær myndir, annarsvegar Susanne Skou og hinsvegar Nopal Mascot. Ætli flestir séu ekki sammála um að Susanne Skou sé fallegt skip. Mjúkar línur og engin hvöss horn, sem „meiða“ augað. Sumir mundu taka svo djúpt í árina að segja að Susanne Skou væri skip. Aldursmunur þessara tveggja skipa er aðeins 11 ár, en með nú- tíma flutningatækni, þar sem varningnum er ekið um borð og frá borði, í stað þess að lyfta hon- um, koma fram skip á borð við Nopal Mascot — óhugnaði er lík- ist helst flugvélamóðurskipi. Öll fegurð og mýkt látin lönd og leið, en hagkvæmni og afköst eru alls- ráðandi. BA. Susannc Skou. Smfðuð árið 1967. Burðargeta 9750 tonn. Ætluð til flutninga á allri almcnnri vöru. VIKINGUR 55

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.