Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Síða 58

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Síða 58
hingað fyrstir togleðursstígvél, bússur, og varð sú nýbreytni vin- sæl og breiddist ört út. Fyrsti skipstjórinn, sem kom hingað til lúðuveiða, beint til Þingeyrar og veiddi á Vestfjarð- armiðum, hét John Diego. Hann var vinsæll og mikill aflamaður, og á merka afkomendur hér á landi, og svo er raunar um fleiri Ameríkumenn, sem hingað komu frá Gloucester. Nánast af hreinni tilviljun fór ég að verða mér úti um fróðleik um þetta efni, lúðuveiðar Ame- ríkana, en get varla sagt að ég hafi haft vísitölukaup fyrir þau hlaup. Hafa þó ýmsir góðir menn látið mér í té upplýsingar, en vart nægilegar til þess að hægt sé að skrifa þessa sögu að fullu. Það má heita einkennilegt að ekki sé meira sagt, að það er nær hvergi í heild minnst á þennan sérstæða þátt fiskveiðisögunnar, sem hófst óvænt og lauk skyndilega. Fór þó allmikið fyrir þessu meðan það stóð, og aldrei hefur sú veiðiað- ferð, sem notuð var, þekkst hér á landi í annan tíma, og mun ekki koma aftur til sögu. Um margt ómerkara hefur verið ritað heldur en lúðuveiðar Gloucestermanna við Vestfirði. Eftir þó nokkuð fálm og fum óx mér efnið um mæli mikinn í meðförum, og vant að sjá hvað úr verður. Því er það að ég sting niður penna, að ég veit að Vík- ingur fer víða. Sé einhverjum les- anda kunnugt um þessar lúðu- veiðar Ameríkana, viti um heim- ildir eða myndir í því sambandi, þætti mér fengur að fræðast um það. Hugsanlega get ég a.m.k. haldið til haga þeim fróðleik um þetta efni, sem ég veit að nú liggur hér og hvað ónotaður. Bárður Jakobsson, Ásbraut 9, 200 Kópavogur. Sími: 42619 Þarf ég raunverulega sjö sprautur við kvefi? Skoöun og viðgeröir gúmmíbáta allt árið. GÚMMIBÁTAÞJÓNUSTAN Eyjagötu 9 Örfirisey Slmi 14010 58 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.