Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Side 59

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Side 59
Ljóðið „Á ferð minni með íslenskum togara frá Englandi heim í haust er leið, var mér það mikil gleði að heyra skipverja kveða og syngja jafnan við stýrið, og virtist það venja þeirra. Þá hét eg því með sjálfum mér, að eg skyldi reyna að leggja hinum ágætu sjómönnum vorum á varir það, sem bezt hefir verið kveðið á íslenzka tungu um sjó og siglingar, og eru hér nú efndirnar. Hver mundi betur skilja og meta slík ljóð, en sá, sem alt af hefir yrkisefnið sjálft fyrir augum? Og hvað er betri hressing í striti lífsins og stríði, en að beina augum og huga að fegurð og tign náttúr- unnar, sem maður lifir og hrærist í? Hvert gott ljóð er sem sjónarhæð með nýrri útsýn, en jafnframt lifir í hreimi kvæðanna og hætti sá andi, sem þau eru af sprottin. Og hress- andi hafrænu hefir alla tíð andað á íslenzkan kveðskap, því að vér eig- um, eins og safn þetta vottar, sjáv- arljóð og siglinga frá öllum öldum síðan á 9. öld. Hver íslenzkur sjó- maður getur því átt sálufélag við forfeður vora framan úr fomeskju og séð sjóinn jafnt með augum víkinganna sem sínum. Það sálu- félag ætti að nægja til að lauga úr huga og af vörum sjómanna vorra allan þann útlenda orðahroða, sem skolað hefir inn í sjómannamálið og gert það að afskræmi tungu vorrar. Ef sjómenn vorir taka upp þau orð, sem nú er verið að smíða handa þeim, og lesa, kveða og syngja þessi Ijóð — og þeir ættu að læra bæði rímnalög og söng á Stýrimannaskólanum —, þá mun bráðum hljóma um höfin sú ís- lenzka, sem ættemi þeirra og karl- mensku er samboðin.“ Þannig rítar Guðmundur Finn- bogason í formála að „Hafrænu“, VÍKINGUR sjávarljóð og siglinga, sem út kom 1923. Víkingurinn mun á næstunni birta valin ljóð úr bók þessari, sem lengi hefur verið ófáanleg. Davíð Stefánsson: A dökkumiðum Dimt er á Dökkumiðum, djúpur og úfinn sœr; á hverju einasta kvöldi karl einn þangað rœr. — Dimt er á Dökkumiðum. Þegar hann fyrst þar fleygði fögrum öngli í sjó, gamlan og feitan golþorsk, glaður inn hann dró, tautaði eitthvað við sjálfan sig, söng — og skellihló. Á hverju kvöldi síðan karlinn þangað fer, og við þessar fiskiveiðar vel hann unir sér, og altaf kemur hann hlaðinn heim, hvernig sem veður er. Dimt er á Dökkumiðum, djúpur og úfinn sær, sumir segja að karlinn sem að þangað rœr, sé með horn og hala og hófa — og jafnvel klœr. Og það er í gamalli þjóðsögn, aðþegar einhver deyr, þá verði sálin að þorski til að þvo af sér gamlan leir. . . og síðan ekki söguna meir. — En dimt er á Dökkumiðum. 59

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.