Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Page 61

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Page 61
Einn af sigurvegurum norðurauðnanna Hinn 5. maí sl. voru liðin hundrað ár frá fæðingu rússneska heimskautafarans Georgí Sédofs (1877-1914), en hann var for- ystumaður fyrsta rússneska leið- angursins til Norðurpólsins. Hvað vissu menn um lands- svæðin kringum Norðurpólinn í lok síðustu aldar? Að þar væri ekki fastaland, heldur haf, að þetta haf væri ísilagt, - og svo að sjálfsögðu að þar væri kalt. Þetta er ekki mikið - en menn langaði til þess að vita allt! Um margra alda skeið höfðu hraustir farmenn og vísindamenn reynt að komast sem lengst inn á Norðurskauts- landið, — inn á hinar erfiðu ís- auðnir sem búa yfir hinum óvæntustu fyrirbænum. Nöfn hinna hraustustu sigurvegara norðurauðnanna má lesa á landa- bréfum nútímans: Laptéf bræður, Dezjnéf, Sedof, Amundsen, Peare, Sverdrup . . . Georgí Sédof fæddist í litlu þorpi á strönd Azovshafs í fjöl- skyldu fátæks fiskimanns. Hann sem þá voru óþekktir reyndust afar dýrmætar. Rannsóknarferð Sédofs var síðasta tilraunin sem gerð hefur verið til að komast á hundasleðum á Norðurpólinn. Nálægt Sédofhöfða, þar sem „Heilagur Fóka" hafði vetursetu og þaðan sem Sédof hóf sína hetjuferð, var árið 1929 reist rannsóknarstöð. Sama ár kom ís- brjóturinn Sédof með fyrsta hóp sovéskra vetursetumanna, sem komnir voru til þess að halda áfram þeim störfum sem hafin voru að rannsóknum á norður- slóðum. APN Leiðangur Georgi Sédofs. Hann ákvað að fara fótgangandi til Norð- urpólsins. fór ungur að hjálpa föður sínum og kynntisl kröppum kjörum fiskimanna, sem ól upp í hinum verðandi norðurfara þolgæði og þrautseigju, kjark og karl- mennsku. Þarna óx líka ást hans á hafinu og draumurinn um að ganga í sjóherinn, — en á þeim tímuin var honum einmitt falið að annast allar vísindarannsókna- ferðir. Sédof stóðst sjóliðsforingjapróf með ágætum og fékkst síðan alla ævi við rannsóknir og færði inn á kortin hin ýmsu höf og eyjar á norðurslóðum og með Kyrrahafs- ströndinni. Georgí Sédof sýndi fram á það að rússar yrðu að taka sem allra virkastan þátt i rannsóknum á Norðurheimsskautslandinu. í ágúst 1912 lagði skipið „Heilagur Fóka“ úr höfn í Arkhangelsk, en þaðan er greið leið um Hvítahaf og Barentshaf beint út í Norður— Atlantshafið og var ferðinni heitið til Norðurpólsins. En á móts við strandir Novaja Zemlja fraus Georgi Sédofs skipið klossfast í ísinn og neyddist til að sitja þar veirarlangt. Ári síðar eftir mikil harðindi tókst leiðangursmönnum að komast á Frans-Jósefsland. Hjá Gúkereyju festust þeir aftur til nýrrar vetrar- dvalar. Hér dundi yfir þá enn ein af þeim uppákomum sem heims- skautalöndin loka með leiðum sínum — skyrbjúgur. En þrátt fyrir sjúkdóminn lagði Sédof af stað með tveimur hásetum á hunda- sleðum og tóku þeir stefnu á pól- inn. Þeir áttu fyrir höndum tvö þúsund km. ferð. Rannsóknir leiðangursmanna á veðurfari og náttúru heimsskauts- ins, á straumum lofts og lagar, á myndun íss og yfirborðs hans sem safnað var á þeim stöðum heims VÍKINGUR 61

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.