Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Blaðsíða 29
TILKYNNING
frá Fiskveiðasjóði íslands
Umsóknir um lán á árinu 1988 og endurnýj-
un eldri umsókna. Um lánveitingar úr
Fiskveiðasjóði íslands á árinu 1988 hefur
eftirfarandi verið ákveðið:
1. Vegna framkvæmda í fiskiðnaði:
Sjóðsstjóm telur ekki þurfa aukna afkastagetu í hefð-
bundnum vinnslugreinum og metur umsóknir
samkvæmt því. Eftir því sem fjármagn sjóðsins hrekk-
ur til verður lánað til bygginga, véla, tækja og
breytinga, sem hafa í för með sér bætt gæði og aukna
framleiðni.
2. Vegna endurbóta á fiskiskipum:
Lánað verður til skipta á aflvél, til tækjakaupa og
endurbóta, ef talið er nauðsynlegt og hagkvæmt.
3. Vegna nýsmíði og innflutnings á fiskiskipum:
Lán vegna nýsmíði og innflutnings á fiskiskipum
verða eingöngu veitt ef skip sambærilegrar stærðar
eru úrelt, seld úr landi eða strikuð út af skipaskrá
af öðmm ástæðum. Hámarkslán er 65% vegna ný-
smíði innanlands, en 60% vegna nýsmíði erlendis eða
innflutnings. Engin lán verða veitt vegna nýsmíði eða
innflutnings báta undir 10 rúmlestum.
4. Endurnýjun umsókna:
Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að end-
umýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir hvemig þær
framkvæmdir standa sem lánsloforð hefur verið veitt
til.
5. Hækkun lánsloforða:
Mikilvægt er að lánsumsóknir séu nákvæmar og verk
tæmandi talin. Sérstök athygli er vakin á því að láns-
loforð verða ekki hækkuð vegna viðbótarfram-
kvæmda, nema ljóst sé að umsækjandi hafi ekki getað
séð hækkunina fyrir og hækkunin hefi verið sam-
þykkt af sjóðnum áður en viðbótarframkvæmdir
hófust.
6. Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er til 31. desember 1987.
7. Almennt:
Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð
Fiskveiðasjóðs liggur fyrir. Sérstök athygli er vakin
á því, að sjóðurinn getur synjað lánsumsókn, þótt
hún uppfylli almenn skilyrði. Umsóknum um lán
skal skila á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt þeim
gögnum og upplýsingum, sem þar er getið, að öðrum
kosti verður umsókn ekki tekin til greina (eyðublöð
fást á skrifstofu Fiskveiðasjóðs íslands, Austurstræti
19, Reykjavík, svo og í ýmsum bönkum og sparisjóð-
um utan Reykjavíkur). Umsóknirer berast eftir
tilskilinn umsóknarfrest verða ekki teknar til greina
við lánveitingar á árinu 1988 nema um sé að ræða
ófyrirséð óhöpp.
Reykjavik, 10. nóvember 1987,
Fiskveiðasjóður íslands.
VOKIÍA
DÆLUR
HAMWORTHY
SUNDSTRAND TUROLLA
SAUER
SUNFAB
Handstýrð og rafstýrð
tengsli fyrir vökvadælur.
T.R.W. og SAUER vökva-
__ mótorar.
FJ^K Viðgerðar- og
\varahlutaþjónusta.
IANDVÉL4RHF
SMICULflÆGI 66. KÓPAVOGI. S 9176600
spennubreytar
'— Simi 54745 - Box 400
Trönuhraun 5 - Hafnarf.