Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Page 13
Viðurkennd MAK
Þjónusta.
FRAMTAK, Hafnarfirði
Kraltmihril
og lipur viðgerðarpjónusta
nú einnig dísilstillingar
FRAMTAK - alhliða viðgerðarþjónusta:
• VÉLAVIÐGERÐIR
• RENNISMÍÐI
• PLOTUSMIÐI
BOGI • DBSILSTILLINGAR
Tillaga um mótun
fjölskyldustefnu
Sex alþingismenn hafa lagt fram á Alþingi þingsálykt-
unartillögu um mótun opinberrar fjölskyldustefnu og
aðgerðir til að styrkja stöðu fjölskyldunnar. Tillagan er
nú hjá félagsmálanefnd Alþingis.
„Það er mikið sem liggur fyrir hjá nefndinni og óvíst
hvenær nefndin afgreiðir málið frá sér,“ sagði Siv Frið-
leifsdóttir, varaformaður nefndarinnar. Þegar hún var
spurð hvort tillit yrði tekið til bréfs Farmanna- og fiski-
mannasambandsins (sjá annars staðar á opnunni)
sagði hún of snemmt að segja til um það.
Rannveig Guðmundsdóttir, sem var fyrsti flutnings-
maður tillögunnar, sagði hins vegar að sér þætti eðlilegt
að kalla sjómenn til, svo þingmenn gætu ráðfært sig við
þá og heyrt skoðanir þeirra.
Nokkur dæmi
Þegar tillagan er lesin er ekki hægt annað en hnjóta
um nokkur atriði sem erfitt verður að framkvæma með
þeim hætti að sjómenn og fjölskyldur þeirra sitji við
sama borð og aðrir. Tökum nokkur orðrétt dæmi úr
þingsályktunartillögunni:
„Að velferð fjölskyldunnar byggist á jafnrétti kvenna
og karla og sameiginlegri ábyrgð á verkaskiptingu innan
hennar.
Að sköpuð séu skilyrði til þess að ná jafnvægi milli
atvinnu foreldra og fjölskyldulífs, einkum með tilliti til
ábyrgðar og umönnunar barna.
Að lögð sé aukin áhersla á ábyrgð feðra í umönnun
og uppeldi barna sinna.“
GÓt> ÞJÓNUSTA
VEGUR ÞUNGT
FRAMTAK
VÉLA- OG SKIPAÞJÓNUSTA
Drangahrauni Ib Hafnarfirði
Simi 565 2556 • Fax 565 2956
Alþingi:
Sjómannablaðið Víkingur
13