Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Page 26
Jón bróðir í heimsókn um borð í Sigli.
dögum skipti. Maður getur því ímyndað sér
hvernig líðanin er hjá mönnum ef veikindi
eða aðrir erfiðleikar eru hjá fjölskyldunni
heima.“
Notalegt að fá einn
ÚR FJÖLSKYLDUNNI í HEIMSÓKN
Ahafnir skipa á sama veiðisvæði halda sam-
bandi sín á milli. Ekki er óalgengt að
nýkomin skip flytji pakka tii þeirra sem hafa
verið Iengur. I fásinninu verður blaðapakki
spennandi. Einnig flakka menn á milli skipa
á tuðrum ef ekkert er að gera. Vinsælt var að
heimsækja Sigli, enda sex konur um borð!
Kristín fékk Jóhann bróður sinn, skipverja
á Siglfirðingi, í heimsókn nokkrum sinnum.
„Það var ósköp notalegt að fá einn úr fjöl-
skyldunni í heimsókn. Ég fór aldrei á milli en
á afmæiisdegi Þorleifs áttum við heimboð í
næsta togara. Það var búið að elda dýrindis
mat og undirbúa komuna en þá fékkst fiskur
og ekki verið að spyrja um afmælisdaga þegar
koma þarf fiski frá.“
Hvað eru margir
PUTTAR PAR TIL ÞÚ KEMUR?
Símasambandið er ekki aðeins lélegt heldur
er dýrt að hringja frá Smugunni til Islands.
Kristín segir að þetta stopula samband hafi
valdið því að hún talaði sjaldnar við synina en
hún hafi kosið. Þeir báru sig vel framan af en sá
yngri spurði alltafhvenærþau kæmu heim.
„Mamma, hvað eru margir puttar þar til
þú kemur?“ spurði hann einu sinni. Ég hafði
ekki brjóst í mér til að segja honum að þeir
væru þrjátíu. Einu sinni stóð illa á, amman í
vinnunni og afinn í baði. Þá var allt ómögu-
legt hjá þeim stutta og eftir samtalið kastaði
ég mér í koju og sagðist ekki geta meira. Leifi
viðurkenndi seinna að hann hefði átt erfiðara
með að kveðja þá þegar við fórum saman út
en alla jafna þegar þeir verða eftir hjá mér. Þá
skorti ekkert en sá yngri fékk alveg nóg af
Reykjavík og ætlar aldrei þangað aftur,“ segir
Kristín og hlær.
Eins og kom fram í upphafi fiskaðist
ekkert fyrstu fimm vikurnar. Hvað er hægt
að gera í slíkri bið?
„Við spiluðum rosalega mikið, kjöftuðum
saman, átum og sváfiim. Um borð er bóka-
safn og svo skiptumst við á bókum og lásum
allt sem fannst á prenti. Ég horfði á fimm
myndbönd og nennti ekki meiru af því.
Sumum er sama hvað þeir horfa á en ég eyði
ekki tímanum í myndbandagláp ef myndirn-
ar höfða ekki til mín.“
En þegar fiskast er unnið alveg botnlaust
og frívaktir líka. Hún segir að stelpurnar hafi
ekki dregið af sér í vinnu en strákarnir hafi
reynt að hlífa þeim við erfiðustu verkunum ef
mögulegt var, sérstaklega við tækjavinnunni.
Aflinn var þorskur og rækja en h'tið verð
fékkst fyrir hana.
Myndi vilja fara
AFTUR EN EKKI SVONA LENGI
Kristín segir að þau hjón hafi haft mjög
gott af þessari samveru.
„Við höfum aldrei verið svona lengi saman
í einu. Við héldum kannski að það yrði
hjónabandinu ofraun að vinna saman, borða
saman og sofa saman í margar vikur. Þessi
tími styrkti samband okkar heldur en hitt. Ég
myndi þó ekkt mæla með þessari aðferð fyrir
hjón sem ætla að reyna að berja í einhverja
bresti í hjónabandinu, það gengi aldrei upp.
Þessi reynsla hjálpaði mér líka að skilja betur
starf mannsins míns og sjómanna yfirleitt. Ég
myndi vilja fara aftur, en ekki svona lengi,“
segir Kristín Ottesen sjómannskona sem
gerðist sjómaður í níu vikur í sumar.
26
Sjómannablaðið Víkingur