Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Side 61
sjálfra með íslenskum áhöfnum er hluti af
sjálfstæði þjóðarinnar. Þingið varar við óeðli-
legri tilhneigingu íslenskra kaupskipaútgerða
til að leigja erlend kaupskip með erlendum
áhöfnum til að sinna flutningum íýrir lands-
menn. Slíkt verður óhjákvæmilega til þess að
verkkunnátta ísienskra farmanna glatast og
stefnir þannig sjálfstæði þjóðarinnar í hættu.
Þingið skorar á stjórnvöld að ieggja sitt af
mörkum til að viðhalda íslenskum kaup-
skipaflota og atvinnu íslenskra farmanna. I
dag eru aðeins tvö skip í miliilandasiglingum
sem skráð eru á íslandi.
Alþjóðaskipaskráning
20. þing Sjómannasambands íslands mót-
mælir öllum hug-
myndum um al-
þjóðaskipaskrán-
ingu á íslandi sem
leið til að auka
samkeppnishæfni
íslenskra skipaút-
gerða um flutn-
inga. Alþjóða-
skipaskrá felur
meðal annars í sér
rétt útgerðar-
manna til að ráða
til sín erlenda sjó-
menn á afar lök-
um kjörum, sem myndi fela í sér enn frekari
fækkun íslenskra farmanna. Vilji stjórnvöld
aðstoða íslenskar skipaútgerðir er það hægt
með stjórnvaldsaðgerðum, án nýrrar skipa-
skrár, sem meðal annars fælu í sér lækkun
ýmissa gjalda og skattaívilnanir. Verði af fyrr-
nefndum hugmyndum um alþjóðaskipaskrá
á íslandi mun Sjómannasamband íslands
beita sér fyrir því að íslenski fáninn í
fyrrnefndri skipaskrá verði lýstur
þægindafáni.
Aðbúnaður sjómanna
20. þing Sjómannasambands íslands
bendir á að á undanförnum árum hafa veiðar
fslendinga sífellt farið vaxandi á fjarlægum
miðum. Sem dæmi má nefna veiðar í Smug-
unni, í Barentshafi og á Flæmska hattinum.
Fjöldi skipa sem þessar veiðar stunda er alls
ekki búinn til langrar útivistar með tilliti til
aðbúnaðar áhafnar. Sérstaklega á þetta við
um minni og eldri skipin. Klefkr eru litlir og
sameiginlegt rými mjög af skornum skammti.
Landlæknír um sjálfsvíg:
Alvariegt
ástand
enýktar
sögur
Ólafur Ólafsson landlæknir sendi Sjómannablaðinu Víkingi bréf
þar sem fram kom niðurstaða úr könnun sem embætti hans hefúr gert
um sjálfsvíg sjómanna. Astæða könnunarinnar var þrálátur orðrómur
um tíð sjálfsvíg sjómanna, sérstaklega meðal þeirra sem stunda veiðar í
Smugunni.
f bréfi landlæknis kemur fram að orðrómurinn er stórlega ýktur, en
á síðustu tveimur til þremur árum hafa þrír sjómenn tekið líf sitt.
Landlæknir segir það alvarlegt og að bæta þurfi félagslega aðstöðu sjó-
manna og aðbúnað þeirra.
ffann segir orðrétt: „Fram kemur að þrír sjómenn hafa framið sjálfs-
morð á s.l. tveimur til þremur árum. Það er of mikið.
Brýnt er að vinna að bættum aðbúnaði og sálfræðilegri aðstoð við
sjómenn.“
hönnum&
FRAMLEJÐUM
• Gasskynjara
• Öryggiskerfi fyrir kæli-
og frystikerfi
• Skráningartæki fyrir
hita, raka, þrýsting,
sýrustig og fleiri
skynjara
RKS Skynjaratækni ehf.
t/s. Slmi 455 4555
Austurskiljur frá
• Fyrirferöalitlar e Einfaldar
• Ódýrar e Öflugar
Standast IMO A.393 [x], Part II M.S. Coast Guard reglugerðir
ill shí
Sjómannablaðið Víkingur
61