Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 8
Náttúrufræðingurinn
7. mynd. Franski örverufræðingurinn
Alexandre Yersin a'tti öðrum mönnum
meiri þátt í að skýra eðli og útbreiðslu-
leiðir kýlapestar. (Encyclopædia Britann-
ica.)
sjúkdóm, kýlapest, sem berst í menn
úr rottum með biti rottuiíóa.
Kýlapest
Öldum saman hefur skæður sjúk-
dómur legið í landi á Indlandi og
víðar í heimi. Sýklalyf vinna á sjúk-
dómnum, en annars er hartn oftast
banvænn mönnum og einkennist
jafnan af kýlum í eitlum í handar-
krikum og í nára. Sýkin er því nefnd
kýlapest.
Undir lok nítjándu aldar braust út
alvarlegur faraldur af kýlapest á Ind-
landi og breiddist þaðan til annarra
landa í Suðaustur-Asíu. Læknar og
vísindamenn komu víða að og unnu
hörðum höndum við að átta sig á
flóknu lífsmynstri plágusýkilsins.
Einna mestan þátt í lausn gátunn-
ar átti franskur örverufræðingur,
Alexandre Yersin (7. mynd), sem
verið hafði lærisveinn Pasteurs í
París. Hann kom til Hong Kong árið
1894, þegar nýlendan var illa leikin af
plágunni. Yfirvöld veittu honum lít-
inn sem engan stuðning. Hann varð
að láta sér nægja sem rannsóknastofu
strákofa, sem hann sjálfur reisti, og
þurfti að múta líkhúsvörðum til að
komast yfir lík plágudauðra.
Yersin færði sönnur á að kýla-
pestin er sjúkdómur í nagdýrum,
sem berst á milli dýranna með biti
flóa. Smitun til manna er flókin
vegna millihýslanna (9. mynd) og er
gerólík beinni smitun martna á milli.
Yersin einangraði sýkilinn, sem
reyndist vera baktería og hlaut
fræðiheitið Yersinia pcstis, kennd við
uppgötvarann og pestina sem hún
olli.
Einkenni flestra - en þó ekki allra -
tilvika af kýlapest eru kýlin í eitlun-
um. Þegar Yersin hafði greint frá
rannsóknum sínum á eðli og ferli
þessa sjúkdóms, rifjaðist upp fýrir
mörtnum að mörg fómarlömb plágu-
faraldranna í Evrópu þjáðust líka af
þrota í eitlum og þá var því tafarlaust
slegið föstu að um sama sjúkdóm
hefði verið að ræða - að svartidauði
hefði verið kýlapest.
Þessari greiningu, út frá einu sjúk-
dómseinkenni, hefur verið haldið á
loft gagnrýnislítið út 20. öldina og að
mestu til þessa dags.
Bldðpest, kýlapest og lungnapest
Scott og Duncan kalla nagdýrasýk-
ina bubonic plague eða kýlapest,d eins
og til þessa hefur tíðkast. Pláguna í
Evrópu, svartadauða (og þar með
báða faraldrana á íslandi), telja þau
af öðrum uppmna og kalla hana
haemorrhagic plague, sem ég útlegg
blóðpest, enda em gífurlegar irtnri
blæðingar einkertni sýkinnar.
Afbrigði kýlapestar er lungnapest
(pneumonic plague). Fyrir kemur að
kýlapestarsýkill berst í lungu manns.
8. mynd. Táknmynd dauðans með stunda-
glas íhendi. (Prentþrykk úr Hrappseyjar-
prentsmiðju. Einar Laxness 1995. ís-
landssaga a-ö.)
rottur í
mannabyggð
þolin nagdýr
9. mynd. Flóin gegnir
meginhlutverki í að bera
Yersinia pestis á milli
nagdýra, meðal annars
úr stofnum þolitina
villtra nagdýra í rottur
og þaðan í menn. Aðeins
lungnapest berst beint úr
einum manni í annan.
lungnapest
maður
d í íslenskri orðabók (Edda 2002) er aðeins ein merking orðsins kýlapest gefin - pest sem veldur kýlum, graftarígerðum af völdum staflaga sýkils (actinobacillosis).
Lungnapest er þar eingöngu skilgreind sem bráð lungnabólga í sauðfé af völdum sýkla.
6