Náttúrufræðingurinn - 2005, Síða 18
Náttúrufræðingurinn
1. mynd. Helstu setlagasyrpur á Vestfjörðum og Vesturlandi þar sem plöntustein-
gervingar hafa fundist. Sjá má aldur jarðlaga, hallastefnu og afstöðu til þekktra
megineldstöðva.26,27 - Main plant-bearing sedimentary formations in northwest and
west lceland, showing their ages, dip directions and relations to known central
volcanoes.26,27
Gautshamar, en þau eru 10 milljón
ára gömul. Stór vængjuð hlynaldin,
sem greind voru til nýrrar tegundar
árið 1976 og nefnd Acer askdssonii
eftir Jóhannesi Áskelssyni, fundust í
12 milljón ára gömlum setlögum í
Surtarbrandsgili við Brjánslæk, í 10
milljón ára gömlum setlögum við
Tröllatungu, Húsavíkurkleif og
Gautshamar, í 9-8 milljón ára
gömlum setlögum í Mókollsdal og í
7-6 milljón ára gömlum setlögum í
nágrenni Hreðavatns.7,8,9,5
Lýsing og greining
PLÖNTUHLUTA
Hér verður lýst plöntuhlutum
(aldinum og blöðum) álms, væng-
hnotu og hlyns. Lýsingar á laufblöð-
um eru í samræmi við lýsingar og
greiningartækni Dilchers.10 Helstu
mælieiningar eru settar fram, t.d.
lengd, breidd og fjöldi tiltekinna
einkenna. Öllum öðrum útlitsein-
kennum sem nota má hl að greina á
milli mismunandi plantna, ættkvísla
jafnt og tegunda, var ennfremur lýst.
Þessi einkenni eru m.a. strengjakerfi,
frá miðstreng og niður í mimistu
smástrengi, uppröðun strengja,
lögun og fjöldi tanna, lögun blað-
botns og blaðodds, einkenni blað-
brúnar, lögun stilks, sepa, smáblaða
o.s.frv. Enginn viðurkenndur grein-
ingarlykill er til fyrir aldin. Væng-
aldinum var því lýst með því að
mæla helstu hluta eins og lengd og
breidd fræhúss og vænghaf aldins-
ins. Öll önnur einkenni sem greina
Setlög með plöntusteingervingum Aldur (m.á.) Álmur Ulmus sp. Vængaldin Álmur Ulmus sp. Laufblað Vænghnota Pterocarya sp. Vængaldin Vænghnota Pterocarya sp. Laufblað Hlynur Acer askelssonii Vængaldin Hlynur Acer sp. aff. askelssonii Laufblað
Hreðavatn - Stafholt 7-6 X X
Skarðsströnd - Mókollsdalur 9-8 X X X X X X
Tröllatunga - Gautshamar 10 X X X
Brjánslækur - Seljá 12 X
Dufansdalur - Ketilseyri 13,5
Selárdalur - Botn 15
1. tafla. Yfirlit yfir setlög tneð plöntusteingervingum, aldur þeirra og staðsetningu jarðlaga. Eftirtektarvert er að tegundir með
stórvaxin vængaldin hafa eingöngu fundist í setlögum frá seinnihluta míósentíma en ekki í eldri jarðlögum. - Upper Miocene
localities with large, winged samaras in Iceland.
16