Náttúrufræðingurinn - 2005, Síða 21
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
álmtegunda séu í kringum 1 cm að
lengd, er til álmtegund sem ber
óvenjustór vængaldin, en það er
gráálmur (Ulmus macrocarpa Hance)
sem er staðbundin tegund í Kína og
er venjulega með aldin sem eru um
25 mm á lengd og 20 mm á breidd.
Vængaldin þessarar tegundar geta
þó orðið allt að 45 mm löng og 40
mm breið og eru það allra stærstu
vængaldin sem þekkjast hjá nú-
lifandi álmtegundum. Samanborið
við vængaldin annarra núlifandi
álmtegunda eru þessi vængaldin úr
síðtertíerum setlögum hér á landi
óvenjustór. Form og lögun væng-
aldinsins líkist mest því sem er hjá
hinum eiginlega álmi (17. glabra
Hudson), þó með þeirri undan-
tekningu að íslenska aldinið er
miklu stærra og hakið í vængnum
nær töluvert lengra inn í vænginn í
átt að fræhúsinu. Lögun fræhúss og
staðsetning þess, yfirborðsáferð,
vængform, lega miðæðar og bikars
er hins vegar líkt og hjá álmi.
Álmblað
Steingervingurinn er númer 799 í
originalsafni Náttúrufræðistofnunar
íslands. Aðeins er um efri hluta
blöðku að ræða (2. mynd a) þar sem
laufblaðið hefur ekki varðveist heilt.
Lýsing:
Blaðhlutinn sem fannst er 72 mm langur
og 112 mm þar sem hann er breiðastur.
Samanburður við aðrar núlifandi teg-
undir með sama blaðform bendir til þess
að blaðið hafi verið allt að 140 mm langt.
Blaðkan er ósamhverf. Blaðlögun hefur
verið öfugegglaga (wide obovate) með
mesta breidd fyrir ofan miðju. Blað-
oddurinn er stuttur, skarphoma (<90°,
acute) og hvass. Blaðröndin er tennt og
eru tennur eftir allri blaðröndinni (þeim
hluta sem er varðveittur). Tennurnar eru
saglaga (serrate) og skiptast í þrjá flokka,
aðaltennur sem eru markaðar af hliðar-
strengjum (annarrar gráðu æðar), þær
eru þríhyrndar og frekar breiðar og hafa
oftast litlar hliðartennur á annarri eða
báðum hliðum. Á svæðinu milli aðal-
tannanna eru allt að tvær undirtennur (4.
mynd), þær em aðeins minni en aðal-
tennurnar en svipaðar að lögun. Æðar-
kvísl úr hliðarstrengnum og þverstreng-
ir (þriðju gráðu æðar) liggja út í þær.
Aðalstrengjakerfi blaðsins er einfalt
(pinnate) með einum aðalstreng (fyrstu
gráðu æð) eða miðstreng. Hliðar-
strengirnir stefna beint eða í boga út frá
aðalstrengnum og enda í oddi aðaltann-
anna (craspedodromous æðakerfi). Þeir
eru stakstæðir og rísa upp eftir aðal-
strengnum með 38°-24° horni, í miðju til
efri hluta blöðkunnar, og með 14-21 mm
millibili. Þverstrengirnir rísa hornrétt
eða skarpt frá neðri hlið (exmedial)
hliðarstrengjanna og homrétt eða gleitt
frá efri hlið (admedial) þeirra. Munstrið
er einfalt (percurrent) þar sem þver-
strengirnir frá samhliða hliðarstrengjum
sameinast. Þverstrengimir stefna beint
eða klofna á leiðinni milli hliðar-
strengjanna. Við blaðröndina stefnir
áberandi þverstrengur að tannskerðing-
unum og klofnar þar, en greinar strengs-
ins liggja út í tennumar samsíða hliðum
þeirra. Hornstrengirnir (fjórðu gráðu
æðar) og smástrengirnir (fimmtu gráðu
æðar) mynda fíngert net með marghliða
og frekar litlum blaðreitum (areoles) (4.
mynd). Reitirnir em óreglulegir að stærð
og lögun og uppröðun er tilviljana-
kennd. Reitastrengir (veinlets) klofna
stundum tvisvar sinnum þar sem þeir
enda innan blaðreitanna.
Steingerða laufblaðið sýnir öll ein-
kenni álms, nema hvað ósamhverfur
blaðbotninn hefur ekki varðveist.
Laufblað af þessari gerð, með tennur
eins og hér hefur verið lýst, strengja-
kerfi og blaðlögun hefur ekki áður
fundist í íslenskum setlögum.
Steingerða álmblaðið líkist mest
laufblöðum núlifandi álms (Ulmus
glabra), sem er nú mjög dreifður um
Evrópu og hluta Asíu. Laufblaðið er
talið af tegund sem hefur haft stórt
vængjað aldin, en hvort tveggja
fannst í setlögum í Mókollsdal og
lögun og helstu formeinkenni aldins-
ins bendir einnig eindregið hl skyld-
leika við álm (Ulmus glabra).
Tegund Útbreiðsla (nútíma) Stærð vængaldins (1/b í mm) Lögun vængaldins Staðsetning fræhúss Stærð fræhúss (1/b í mm) Lögun frænúss Hak í væng
17. carpinifolia Vestur Evrópa & Miðjarðarhaf 15/12 eggHga breiðlensulaga neðanstætt 6/2 lensulaga i/i opið
17. laciniata Kína, Japan & Mongólía 20/13 breiðlensulaga miðstætt 8/3 lensulaga 1/3 lokað
17. glabra Norður og Mið Evrópa & Litla Asía 20/15 egglaga breiðlensulaga miðstætt 8/5 sporöskjulaga breiðegglaga 1/3 opið
17. macrocarpa Kína 25/20 egglaga breiðlensulaga miðstætt 12/7 breiðlensulaga 1/3 opið
Ulmus sp. ísland (míósen) 36/24 egglaga breiðlensulaga miðstætt 9/7 sporöskjulaga breiðegglaga 1/2 opið
2. tnfla. Útbrciðsla og helstu einkenni aldina núlifandi álmtegunda sem líkjast mest þeirri tegund sem fundist hefur í setlögum frá
siðtertíer á íslandi. - Distribution and characteristics of recent winged samaras of elm compared with the large samara from Upper
Miocene deposits in lceland.
19