Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2005, Side 33

Náttúrufræðingurinn - 2005, Side 33
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags I- mynd. Kolbeinsey eins og hún leit út sumarið 1990. Síðan þá hefur eyjan minnkað nokkuð og hætt er við að hún verði orðin að blindskeri fyrir lok þessarar aldar. Ljósm. Árni Hjartarson. Arni Hjartarson Ferð FIvanndalabræðra TIL KOLBEINSEYJAR Ferð bræðranna Bjarna, Jóns og Einars Tómassona frá Hvanndölum til Kolbeinseyjar árið 1616 hefur haldið nöfnum þeirra á lofti til dagsins í dag. Þetta var rannsóknarferð með náttúruathuganir að leiðarljósi og 0|ni landkönnunarleiðangur íslendinga sem vitað er um frá því Vínlandsferðum lauk á söguöld. Ferðarinnar er getið í Þjóðsögum Jóns Árnasonar, Árbókum Jóns Espólíns, Sagnaþáttum Gísla Konráðssonar, Landfræði- s°gu Þorvaldar Thoroddsen og víðar. Frumheimildin er þó aðeins ein, en það er vísnabálkur í 75 sexhendum erindum eftir séra Jón Einarsson frá Stærra-Árskógi á Árskógsströnd við Eyjafjörð. Allar frásagnir af Kolbeinseyjarferð Hvanndalabræðra eru byggðar á þessum vísum, að örlítilli klausu í Skarðsárannál undanskilinni.1 Hér á eftir verður farið í saumana á Kolbeinseyjarvísum og frásagan þar umrituð og skýrð. Þeir sem vilja hafa vísurnar til hliðsjónar geta fundið þær á vefslóðinni www.isor.is/ ~ah. Kvæðið er til í allmörgum afskriftum og í skrám handritadeildar Landsbókasafns - Háskólabókasafns eru 16 uppskriftir kvæðisins nefndar. Hér verður ekki farið út í neinn handritasamanburð heldur einfaldlega farið eftir þeirri uppskrift sem komið hefur út á prenti en það er handritið JSig. 84. 8vo, sem varðveitt er í Þjóðarbók- hlöðu. Yfirskrift kvæðisins er: „Kolbeinseyjarvísur. Eitt kvæði um reisu þriggja bræðra til Kolbeinseyjar 1616, gert af síra Jóni Einarssyni í Staðarárskógi, Anno 1665, 18. Febr." Staðarárskógur er Stærri-Árskógur. Kvæðið birtist fyrst í heild á prenti í tímaritinu Blöndu, 1. árgangi.2 Náttúrufræðingurinn 73 (1-2), bls. 31-37, 2005 31

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.