Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2005, Page 40

Náttúrufræðingurinn - 2005, Page 40
Náttúrufræðingurinn Fréttir VlSTKERFI í HVALHRÆJUM Árið 1987 rákust vísindamenn í köfunarhylkinu „Alvin"á fyrirbæri á djúpsjávarbotni sem reyndist við nánari skoðun vera hræ af 21 metra langri steypireyði. Skrokkurinn var þakinn ýmsum lífverum, svo sem bakteríum og ormum, er minntu á lífið sem þrífst við djúpsjávarhveri, enda er bæði við hverina og í hvalshræjunum mikið af brennisteinssam- böndum. Það er langt á milli dauðra hvala á hafsbotni og mannaferðir um djúpsævið eru ekki heldur tíðar. Til þessa hafa fræðimenn aðeins rannsakað tíu skrokka af hvölum sem drepist hafa í sjó og sokkið niður í djúpið. En þessi hræ hafa reynst svo forvitnileg til rannsókna að menn hafa dröslað um 20 reknum hvölum frá ströndum út á rúmsjó, tjóðrað með ærinni fyrirhöfn við skrokkana allt að þrjú tonn af jámkeðjum og öðm drasli og sökkt þeim í djúpið til að geta síðan fylgst með framvindu lífs í þessum óvenjulegu vistkerfum. í þeim hafa greinst ýmsar lífvemtegundir, sem áður vom óþekktar, þar af 39 sem einkar vel em lagaðar að þessu umhverfi og þrífast líklega hvergi annars staðar. Fá þessara kvikinda em forvitnilegri en ormar af ættkvísl sem hlotið hefur fræðiheitið Osedax, og útleggst víst „beina- gleypir". Þessir ormar hafa hvorki munn, meltingargang né augu, en senda frá sér græna þræði er minna á rætur plantna og éta sér leið inn í bein hvalsins uns þau verða „hol eins og svissneskur ostur", svo vitnað sé í Craig Smith, dýrafræðing frá Hawaii sem sérhæft hefur sig í vistkerfum hvalhræjanna. I „rótarþráðunum" em bakteríur sem í samlífi við ormana vinna og melta fitu og olíu úr hvalbeinunum. Nú em þekktar firnm tegundir af ættkvíslinni Osedax, en hinni fyrstu var lýst 2004. Fjórar þessara tegunda lifa í Kyrrahafi, hin fimmta í Atlantshafi, sem bendir til mikillar útbreiðslu. Hjá tveimur tegundanna hefur greinst mikið kvennaveldi, þar sem kvendýrin em á lengd við vísifingur manns en karlamir em smásæir og lifa inni í eggrásum kvenormanna, og hafa 111 karlar fundist í einni kerlu. Annað furðukvikindi á hvalskrokkum er ormur sem auknefndur hefur verið „Pinky" eða Bleikur (heimild mín getur ekki fræðiheitis). Þetta er burstormur, um sentímetri á lengd, en nánustu ættingjar hans á grunnsævi mælast ekki nema um tveir millímetrar. Menn geta sér þess til að þessi kvikindi hafi lifað á leifum sokkinna hvala um 35 milljónir ára, og ætla má að hvalveiðar á 18. og 19. öld hafi ekki aðeins gengið mjög nærri stofnum hvalanna heldur líka dýranna sem sérhæft hafa sig í að nærast á dauðum skrokkum þeirra. Margt er á huldu um eðli þessara kvikinda, til dæmis h vemig lirfur þeirra fara að því að lifa nógu lengi og rata af einum hvalskrokki til þess næsta. Sjd Amanda Haag: "Whale fall". Nature, lO.febr. 2005, bls. 566-7. Örnólfur Thorlacius tók saman NÆRSÝNI - ERFÐIR OG UMHVERFI Nærsýni í bömum og unglingum fer í vöxt víða um heim en hvergi eins og í löndum Austur-Asíu, þar sem jafnvel er talað um faraldur. Ljóst er að breyttir lífshættir koma við sögu, þar sem börnin verja sífellt meiri tíma inni, yfir bókum, sjónvarpi og tölvum. Þegar böm rýna tímum saman á nálæga hluti, svo sem á bækur og tölvuskjái, er talið að nátfiíran bregðist við með því * að lengja augun, auka bilið frá homhimnu og augasteini aftur á sjónhimnu. Við það verður auðveldara að horfa nærri, en fjarlægir hlutir verða óskarpir. í Singapúr greinist nú nærsýni hjá 80% af 18 ára piltum sem kvaddir eru til herþjónustu. Fyrir 30 ámm var sam- svarandi tala ekki nema 25%. Og erfitt reynist þar að manna störf sem krefjast óskertrar sjónar, svo sem innan lögreglu. Því hefur verið haldið fram að menn af austurasískum stofni séu næmari en aðrir fyrir áhrifum er kalla fram nærsýni. En ástralskir vísindamenn, sem dregið hafa saman útkomu úr mörgum rannsóknum, telja að aukningin í nærsýni verði einungis rakin til breytts umhverfis og samsvarandi aukning eigi eftir að koma fram af fullum þunga á Vesturlöndum. Til dæmis eru 70% af 18 ára körlum af indverskum ættum í Singapúr nærsýnir en aðeins um 10% af jafnöldrum þeirra á Indlandi. Samkvæmt annarri könnun greinist nærsýni hjá 80 prósentum 14 til 18 ára drengja í ísrael sem stunda nám við trúarstofnanir þar sem mikið er lagt upp úr lestri helgirita, en samsvarandi tala fyrir pilta í venjulegum skólum þarlendis er ekki nema 30%. Engu að síður koma erfðir verulega við sögu. Tvíbura- rannsókn í Lundúnum bendir fil þess að 87 af 100 tilvikum nær- og fjarsýni megi rekja fil erfða. En aðeins óverulegur munur greinist á milli stofna manna, og böm á Vestur- löndum virðast á sömu leið og þau asísku. í Svíþjóð em til dæmis 50% tólf ára bama nærsýn, og búist er við að þegar þau verðal8 ára verði hlutfallið komið upp í 70%. Ekki em hér samt öll kurl komin til grafar. Ef nærsýnin stafar af lestri og annarri rýni ættu gleraugu að vinna gegn því með því að létta álagi af augunum, en svo virðist ekki ® vera. Á móti er bent á að margt sem gæti unnið gegn nærsýni hefur lítt verið kannað; til dæmis eru börn sem lítið lesa að jafnaði minna inni en bókaormamir, og í nægu ljósi reynir minna á vöðvana sem sveigja augasteininn til nærsjónar, og rannsóknir sýna að börn sem stunda íþróttir verða síður nærsýn. Mataræði gæti líka komið við sögu. Sjii'Rachel Nowak: "Blame lifesh/lefor myopia, not genes". New Scientist, 10. júlí 2004, bls. 12. 38

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.