Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 66
Náttúrufræðingurinn
Ferill hringmyrkvans 31. maí2003.
Myrkvinn fór yfir svæðið d þremur
stundarfjórðungum, frá kl. 03:45 til kl.
04:31 að íslenskum tíma. Rauða boglínan
sýnir hvar tunglið bar nákvæmlega í miðja
sól (mynd Þorsteins Sæmundssonar).
Hringmyrkvi á sólu
Hringmyrkvi varð á sólu aðfaranótt 31. maí rétt upp
úr klukkan 4. Myrkvinn var sá mesti sem sést hefur
hér á landi síðan 1986 og huldi 94% af þvermáli sólar.
Hringmyrkvi merkir að tunglið fer allt inn fyrir
sólskífuna en nær þó ekki að hylja hana, svo logandi
rönd sólar sést allt í kringum það. Samkvæmt netsíðu
Almanaks Háskólans hófst hringmyrkvinn í
Skotlandi en skugginn renndi sér síðan vestur yfir
Færeyjar, ísland og Grænland. Þessi myrkvastefna, úr
austri til vesturs, er mjög fátíð. Skuggasvæðið var
einnig óvenjubreitt, eða um 1200 km í námunda við
ísland þar sem það var breiðast, enda sólin mjög lágt
á lofti og skugginn langur af þeim sökum.
Myrkvinn sást vel víða um Norðurland, svo sem
við utanverðan Eyjafjörð og í Skagafirði. Fjöldi
manns fylgdist með honum frá Skaga, úr
Ólafsfjarðarmúla og víða um sveitir. Skýjaflákar voru
á himni en þó svifaði frá sól meðan á myrkvanum
stóð og mun hann verða mörgum ógleymanlegur.
Hringmyrkvi hefur ekki orðið hér á landi síðan 1793
og næst gæti hann sést árið 2048.
Sjávarflóð á aðfangadag,
tjón í Reykjavík
Að morgni aðfangadags var stórstreymt og sjógangur
við strendur Reykjavíkur. Öldurnar báru grjót og
þara inn yfir brimvarnargarðinn við Ánanaust og
Eiðisgranda, flettu upp malbikuðum gangstígnum
sem liggur innan við hann og þeyttu stórum flygsum
til og frá. Sjór komst inn í lager BYKO og í
bílakjallara við Grandaveg, Sólvallagötu og víðar á
þessum slóðum. Brimvarnargarðurinn sjálfur
skemmdist lítið sem ekkert. Hann er 4-5 m hár að
utan en 0,5 m landmegin, hlaðinn úr stórgrýti.
Grjótið, sem brimið þeytti yfir garðinn, þakti víða
25 m og upp í 35 m breiða spildu milli varnargarðs
og götu. Mest var umrótið á svæðinu milli JL-hússins
og dælustöðvar á Eiðisgranda, einkum á móts við
Grandaveg. Steinar allt að 40 cm á kant köstuðust þar
á land. Þari og grjót barst yfir götuna. Hringtorgið
við enda Hringbrautar var umflotið sjó. Svæðið var
lokað ökutækjum frá morgni og fram undir hádegi.
Sjór gekk ekki á land annars staðar og athyglisvert er
hve takmarkaða útbreiðslu flóðið hafði. Á
aðfangadagsmorgun fóru saman þeir þættir sem
valda hárri sjávarstöðu: stórstreymi, lágur
loftþrýstingur og álandsvindur. Mikil undiralda úr
Faxaflóa, sem aðstæður við ströndina við Ánanaust
hafa magnað upp, virðist hafa valdið því að brimið
varð óvenjumikið og stórtækt á afmörkuðu svæði.
Gróðurfar
Gróður tók víðast hvar fyrr við sér en í venjulegu ári
í kjölfar hlýindanna yfir vetrar- og vormánuðina.
Sumarið var einnig óvenjugróðurríkt. Grasfrjó
mældist í lofti allt frá 20. maí, sem er fyrr en
venjulega. í júní mældist frjómagn í Reykjavík og á
Akureyri meira en nokkru sinni fyrr frá því farið var
að fylgjast með frjómagni í andrúmslofti.
Flækingsfuglar
Óvenjumargar fregnir bárust af flækingsfuglum á
árinu. Suðaustlægar vindáttir voru tíðar á
vormánuðum en í þeim villast gjarnan fuglar frá
Evrópu hingað til lands. Einnig má vera að einmuna
veðurblíða stóran hluta vetrar hafi gert
fuglaáhugamönnum auðveldara um vik að fylgjast
með ferðum fugla en í venjulegu árferði.
Talsvert bar á keldusvíni (Rallus aquaticus) yfir
vetrarmánuðina víðs vegar á landinu. Ekki er Ijóst
hvort um flækingsfugla var að ræða en fuglinn hefur
64