Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 72

Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 72
Náttúrufræðingurinn sóknum í öllum löndunum fimm lyftistöng og vakti athygli umheims- ins á jarðsögu Norðurlanda. I tengsl- um við ráðstefnuna í Kaupmanna- höfn gáfu íslendingar út rit árið 1960 sem nefndist „On the Geology and Geophysics of Iceland", safn rit- gerða um helstu þætti jarðfræði Islands. Þetta var fyrsta ritið sem nefna mætti yfirlitsrit um jarðfræði íslands frá því að kennslubók Guð- mundar G. Bárðarsonar í jarðfræði kom út 1922, 1927 (2. útg.) og 1945 (3. útg.). Alþjóða jarðfræðiráðstefnurnar hafa staðið í tíu daga og 6500-7500 gestir hafa sótt þær undanfarið. Auk þess hefur verið fjöldi jarðfræðilegra kynnisferða á undan, meðan á ráðstefnunum hefur staðið og í kjölfar þeirra. Þá hafa verið settar upp sérstakar sýningar um jarðsögu ráðstefnulandsins og jarðfræðirit og kort gefin út. Einnig hefur verið lögð áhersla á að kynna menningu og sögu landsins. Hér er því um viða- mikið verkefni að ræða fyrir þá sem standa fyrir ráðstefnunni. Auk Norðurlanda höfðu Bretland og Egyptaland lýst yfir áhuga sínum á að halda ráðstefnuna 2008. Bretland heltist fljótlega úr lestinni, en Egyptaland tók þátt í kapphlaupinu úl síðustu stundar. Undirbúningur að atkvæða- greiðslunni í Flórens hófst í byrjun árs 2002. Stefnt var að því að sannfæra kosningabæra fulltrúa aðildarríkja um að Norðurlönd hefðu upp á ýmislegt að bjóða á jarðfræðisviðinu og að þau væru vel í stakk búin úl að halda ráðstefnuna 2008. Að tillögu Norðmanna var boðið upp á að halda ráðstefnuna í Norges Varemesse í Lillestrom, sem er skammt fyrir utan Osló. Til öryggis voru tekin frá 6100 hótel- herbergi á Oslóarsvæðinu á ráð- gerðum ráðstefnuúma í ágúst 2008. Norðmenn báru hitann og þungann af þessum undirbúningi og útveg- uðu úl þess töluvert fé, einkum frá norskum olíufélögum. Hér heima styrkti umhverfisráðuneyúð þessa undirbúningsvinnu, en vinna ein- staklinga var metin sem framlag stofnana þeirra og var þar einkum um að ræða Náttúrufræðistofnun Islands, Islenkar orkurannsóknir og Orkustofnun. Samið var kynningarrit um Norðurlönd, sem sett var á neúð 2002 og síðan aftur í endurskoðaðri útgáfu 2004, sjá „Interim Bidding Document Prepared by the Nordic Countries for the IGC-Steering Committee", Osló 2004 (www.nqu.no/IGC2008). Þarna koma m.a. fram atriði um jarðsögu Norðurlanda og gerðar eru úllögur um kynnisferðir fyrir og eftir ráðstefnuna. Þá var ákveðið að vera með kynningu í sérstökum sýning- arbás á ráðstefnunni í Flórens, sbr. 1. mynd. Ingibjörg Kaldal hjá ís- lenskum orkurannsóknum var fulltrúi Islands í sýningamefndinni. Þessi kynning tókst afar vel og fóru nokkur þúsund ráðstefnugesta um þennan Norðurlandabás dagana 20.-29. ágúst 2004. Atkvæðagreiðsl- an átti síðan að fara fram 25. ágúst, en daginn áður drógu Egyptar sína umsókn skyndilega til baka svo sigurinn var þar með í höfn. Síðan hefur undirbúningur ráðstefnunnar 2008 verið í fullum gangi. Komið hefur verið á fót sérstakri stofnun, „The Nordic IGC Foundaúon", sem sjá á um allan undirbúning fyrir ráðstefnuna. Helgi Torfason hjá Náttúrufræðistofnun Islands er fulltrúi Islands í stjórn stofnunar- innar. Auk almenns undirbúnings Al- þjóða jarðfræðiráðstefnunnar 2008 yrði þáttur íslendinga líklega fólginn í því að undirbúa og hafa umsjón með umræðuefnum er varða eldvirkiú og landrek, hafa um- sjón með fjórum stórum jarð- fræðilegum kynnisferðum úl Islands og semja um þær leiðsögurit. Þá þarf að undirbúa sýningar í Osló um jarðfræði og almenna sögu íslands. Viðamesta verkefnið gæti orðið útgáfa rits á ensku um jarðfræði íslands. Síðasta yfirliúð á ensku kom út 1980 í úmariúnu Jökli, og því er löngu úmabært að taka saman nýtt, vandað rit af þessu tagi. Hér er um verkefni að ræða sem margir aðilar þyrftu að standa að. Um höfundinn Sveinn P. Jakobsson (f. 1939) lauk mag.scient.-prófi í jarð- fræði við Kaupmannahafnar- háskóla 1969 og dr. scient.- prófi frá sama háskóla 1980. Hann hefur starfað sem sérfræðingur hjá Náttúru- fræðistofnun íslands síðan 1969. PÓST' OG NETFANG HÖFUNDAR Sveinn P. Jakobsson sjak@ni.is Náttúrufræðistofnun íslands P.O.Box 5320 125 Reykjavík 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.