Náttúrufræðingurinn - 2001, Blaðsíða 6
1. mynd. Flundra fPlatichthys flesusj: 34 cm löng hrygna veidd í Ölfusá haustið 1999. -
Flounder fPlatichthys flesusj: a 34 cm long female caught in river Ölfusá in 1999.
Teikning/Drawing: Jón Baldur Hlíðberg.
Flundran líkist mest skarkola og sandkola
og fljótt á litið virðist hún vera sambland
af þeim. Hún þekkist þó auðveldlega frá
þessum tegundum á því að meðfram endi-
löngum bak- og raufarugga eru smáar
beinkörtur, svo og eftir endilangri rákinni
(1. mynd). Einnig eru geislarí raufarugga
færri á flundru en hjá skarkola og sand-
kola, eða 36^-6. Hjá skarkola eru geislarnir
48-59 og sandkola 50-64. Flundran getur
náð um 60 cm lengd en er sjaldan lengri en
40 cm. Skarkoli getur orðið 85 cm og
sandkoli 49 cm.
Heimkynni flundru eru í norðaustan-
verðu Atlantshafi, frá ströndum Marokkó
norður með ströndum Evrópu allt norður á
Kólaskaga, einnig í norðanverðu Mið-
jarðarhafi og í Svartahafi (2. mynd). Næstu
heimkynni hennar við ísland eru Færeyja-
mið þar sem hún er sæmilega algeng
(Joensen og Táning 1970). Hún lifir við
botn frá fjöruborði og niður á um 100
metra dýpi, sækir í ísalt vatn, er gjarna í og
við árósa og gengur jafnvel upp í ár og
læki.
Síðsumars og haustið 1999 vakti það
undrun veiðimanna við Ölfusá og að-
liggjandi læki er þeir fengu flatfiska í
veiðarfæri sín jafnvel langt inni í landi. í mars
2000 barst einn slíkur fiskur í hendur
fiskifræðinga á Hafrannsóknastofnuninni
og hafði hann veiðst í september 1999
(Gunnar Jónsson og Jónbjörn Pálsson
2001). Hér reyndist vera um flundru að ræða,
en sú fisktegund hefur verið talin með öllu
óþekkt á íslandsmiðum til þessa. Reyndar
segir Bjarni Sæmundsson fiskifræðingur í
bók sinni, Fiskarnir (1926): „Flundra (P.
flesus L.), F Skrubba, N og D Skrubbe, S
Flundra, Þ Flunder, E Flounder, algeng
kolategund í Norðursjó og nágrenni, allt til
Færeyja, hefur verið talin með íslenskum
fiskum, af eldri höfundum, en hún hefur ekki
fundist hér, hvorki vaxin né seiðin, þrátt fyrir
rannsóknir síðustu ára; getur hún því eigi
talist með íslenskum fiskum.“ Við þetta er
því að bæta að aldrei varð hennar vart svo
vitað sé frá því Bjami skrifaði þetta og allt til
ársins 1999 að ofangreindar flundrur fóru að
veiðast. Síðan hafa fleiri fiskar þessarar
84