Náttúrufræðingurinn - 2001, Blaðsíða 49
/
Aldarafmæli Flóru Islands
Grasafræðirannsóknir
OG RITSTÖRF STEFÁNS
Stefánssonar, einkum
Flóra Islands
EYÞÓR EINARSSON
egar Stefán Stefánsson hóf rann-
sóknir sínar á plönturíki Islands
fyrir alvöru, árið 1888, höfðu
íslendingar lítt sinnt grasafræði-
rannsóknum síðustu áratugina (1. mynd).
Með rannsóknum sínum og Ferðabók höfðu
Eggert Ólafsson, sem Stefán kallar frum-
höfund íslenskrar grasafræði á einunt stað í
ritum sínum, og Bjarni Pálsson lagt fyrstu
undirstöður slíkra rannsókna, eins og
kunnugt er. Bjöm Halldórsson, Sveinn Páls-
son og ýmsir fleiri, aðallega erlendir menn,
bættu nokkru þar við á síðari hluta 18. aldar.
■ RANNSÓKNIR Á FLÓRU
ÍSLANDS Á 19. ÖLD
A 19. öld urðu nokkrir erlendir grasa-
fræðingar til að heimsækja ísland, ferðast
hér um til rannsókna og skrifa um þær, en
nterkastar þeirra voru rannsóknir Bretanna
'A'.J. Hookers og C.C. Babingtons og
Danans Chr. Grpnlunds. Þekking þessara
Eyþór Einarsson (f. 1929) lauk mag.scient.-prófi í
grasafræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1958.
Hann hefur verið deildarstjóri á grasafræðideild
Náttúrufræðistofnunar íslands frá 1958 og var
forstöðumaður stofnunarinnar í 12 ár. Eyþór sat í
Náttúruverndarráði 1959-1990 eða í 31 ár sam-
lellt, var formaður þess 1978-1990 og hefur ný-
Ega tekið sæti í ráðinu á ný. Hann var formaður
Eins íslenska náttúrufræðifélags árin 1964-1965
°8 1976-1979, heiðursfélagi þess 1992 og kjörinn
félagi Vísindafélags íslendinga 1987.
erlendu grasafræðinga á flóru landsins var
reyndar takmörkuð og bundin við þá
landshluta eða héruð sem þeir höfðu ferðast
um, heildaryfirsýn vantaði sem von var.
Grpnlund skrifaði þó íslenska flóru, sem kom
út árið 1881, og var um tíma besti leiðarvísir
þeirra sem vildu kynnast íslenskum
plöntum. Þar sem hún var skrifuð á dönsku
kom hún þó þorra Islendinga að litlu gagni. í
henni eru heldur engir greiningarlyklar og
sumar tegundalýsingar koma ekki sem allra
best heim við íslensk eintök þeitTa tegunda.
Því sem þar er sagt um útbreiðslu tegund-
anna er í mörgu áfátt, enda voru þá heilir
landshlutar svo til órannsakaðir og all-
margar tegundir ófundnar; enn aðrar
tegundir eru taldar íslenskar þótt þær hafi
aldrei fundist hér með vissu.
Svo til eina framlag Islendinga til grasa-
fræðinnar þá þrjá fjórðunga sem liðnir voru
af 19. öldinni var Islenzk Grasafræði Odds
Hjaltalíns læknis, sem út kom 1830. Hún var
þó ekki nema að mjög litlu leyti byggð á
eigin rannsóknum höfundar heldur „saman-
lesin og útlögð úr ýmsum skrifum urta-
þekkjara“, eins og segir í formála hennar,
aðallega danskri grasafræði eftir W.J.
Hornemann. Flestar plöntulýsingarnar voru
því gerðar eftir útlendum eintökum og
blómgunartími tegundanna tilgreindur eins
og hann var í Danmörku. Allmargar tegundir
voru nefndar og taldar íslenskar þótt þær
hafi áreiðanlega aldrei vaxið á Islandi.
Flestöll fræðiorð voru þýdd úr dönsku,
Nátlúrufræðingurinn 70 (2-3), bls. 127-132, 2001.
127