Náttúrufræðingurinn - 2001, Blaðsíða 38
U e b e r
vulkanische Erzeugnisse aus Island.
V o n
Herrtt Grafen Vargas-Bedemar *).
Einc Sammlung vulkanischcr Produkte von
Island, welche sich nun in dem, unter des
Verfassers Aufsicht stehandcn, Mineralien - Ka-
binette Sr. Königl. Hoheit Prinz Christian
Fricderich von Diiiiemark befindet, enthielt
mehrere, noch erkennbarja, doch offenbar
3. mynd. Upphaf greinar Vargas-Bedemars greifa um jarðfrœði og bergtegundir Islands,
1819. Ekki höfðu margar álíka ítarlegar greinar birst áður um þau málefni í
jarðfrœðitímaritum. - An early general description ofthe volcanic products of Iceland.
merkar rannsóknir á efnafræði steinda og
lýsti meðal annars fyrstur málmunum
zirkoníum og úraníum.
Síðast en ekki síst vil ég telja ritgerð um
jarðfræði íslands eftir mann sem kvaðst vera
spænskur markgreifi, að nafni Edouard
Romeo de Vargas-Bedemar. Bæði nafnið og
aðalstitillinn var þó einungis tilbúningur
hans; réttilega var hann Þjóðverji og hét
C.F.G. Grosse (skv. 15. bindi Dansk
Biografisk Leksikon, útg. 1984). „Greifinn“
átti litríkan feril, sem að hluta tengdist jarð-
vísindum, og meðal annars sá hann lengi um
náttúrugripasafn í eigu krónprins Dana
(síðar Kristjáns VIII). Vargas-Bedemar
samdi nokkrar vísindaritgerðir sem komust á
prent og er ein þeirra nefnd í skrá Haralds
Sigurðssonar (1991); Om vulcaniske
Producter fra Island, 57 bls., Kaupmanna-
höfn 1817. Royal Society Catalogue getur
þess hinsvegar að hann birti útdrátt
þessarar ritgerðar á þýsku í þekktu tímariti,
Leonhards Taschenbuch fur die gesammte
Mineralogie 13,105-135, 1819 (3. mynd). í
útdrættinum er lýsing á ýmsum stein-
tegundum og jarðfræðifyrirbrigðum lands-
ins og getur hann vel hafa orðið til þess að
vekja áhuga annarra á að rannsaka þau
nánar.
■ LOKAORÐ
Oft er talað um að „upplýsingabylting" hafi
orðið í vísindum á síðustu árum og
áratugum, og mætti jafnvel halda, miðað við
sumar staðhæfingar á þeim vettvangi, að
enginn hafi kunnað að dreifa upplýsingum
um vísindaniðurstöður fram að því. Af
ofanskráðu kemur hinsvegar í ljós að miðlun
þekkingar um náttúruvísindi 19. aldar á
Vesturlöndum var mjög skilvirk. í skrám
Royal Society um vísindaritgerðir, sem hér
hefur verið fjallað um, er meðal annars fjöldi
greina um rannsóknir á náttúru íslands á
árabilinu frá því fyrir 1800 til 1914. Þær skrár
um slík erlend rit (og t.d. einnig um
blaðagreinar varðandi Island), sem að-
gengilegar eru hérlendis, eru verulega
götóttar þótt gagnlegar séu við könnun á
sögu rannsókna á náttúru landsins. Það af
þessum ritum sem til er í afritum hingað og
þangað hér á landi er ef til vill aðeins smá-
brot af heildarfjöldanum. Dæmi mín um
116