Náttúrufræðingurinn - 2001, Side 12
Bréf th Náttúrufræðingsins
Ofveiði, OF LÍTIL VEIÐI
EÐA KJÖRVEIÐI
Náttúrufrœðingnum barst eftirfarandi bréf með beiðni um birtingu.
Líffræðingar sem leggja á ráðin um nýtingu
dýrastofna á landi og fiskistofna í vötnum
hafa annað líkan við ályktanir sínar en
líffræðingar sem leggja á ráðin um nýtingu
fiskistofna sjávar. í líkaninu á landi er ástand
dýrastofnsins á öllum aldri frá tímgun metið
og síðan litið til þess við áætlanir um
nýtingu, en við áætlanir um nýtingu fiska
hafsins er litið til stærðar stofnsins í
nýtanlegum árgöngum en ekki til ástands
stofnsins, þ.e.a.s. lífsskilyrða eins og þau
birtast í þrifum á öllum aldri. Þetta á ekki
aðeins við um ísland, heldur almennt um
heiminn. Sú fræðigrein er frumstæð sem ekki
á samstætt líkan fyrir sama viðfangsefni,
eins og hér reynist vera.
Til marks um hversu sneydd líffræði
hafsins er rannsókn á næringu er ritið
Hafrannsóknir við ísland, sem kom út í
tveimur bindum (1988 og 1990), tæpar 800
blaðsíður. Atriðisorðaskrá fyrra bindis, en
það nær til ársins 1937, geymir orðið
næringu, en þó ekki í sambandi við þrif fiska;
í skrá síðara bindis er það alls ekki að íinna.
Höfundurinn, Jón Jónsson, fjallaði
reyndar um samhengi stofnstærðar og
vaxtar í Náttúrufræðingnum 1964 (Ofveiði
og kjörveiði, bls. 4-8), m.a. með þessum
orðum: „Of lítil veiði getur verið jafn skaðleg
og of mikil veiði. Það hefur t.d. komið í ljós,
að þau ár, sem mjög sterkir árgangar af
þorski hafa verið í aflanum, hefur fiskurinn
vaxið hægar en þegar lítið hefur verið af fiski
í sjónum. Við skýrum þetta með því, að
þegar mikið er um fisk sé ekki nóg fæða í
sjónum fyrir allan þann fjölda.“
Enga athugun af þessu tagi er að finna í
Hafrannsóknum við ísland, enda vantar
þessa grein Jóns í ritaskrá síðara bindis.
Orðin í heiti greinarinnar, ofveiði og
kjörveiði, koma varla fyrir í atriðisorðaskrá
ritsins, ofveiði aðeins einu sinni í fyrra
bindinu (um lúðu og skarkola) og í síðara
bindi líka aðeins einu sinni, vegna athugana
frá því fyrir seinni heimsstyrjöld, en orðið
kjörveiði kemur aldrei fyrir í skránni.
Vel væri ef ritstjórn Náttúrufræðingsins
tæki upp þráðinn í grein Jóns frá 1964 og
efndi til rökræðna í ritinu um ofveiði,
vanveiði og kjörveiði, undir því sjónarhorni
sem hann hafði þá.
Björn S. Stefánsson, dr.scient.
Kleppsvegi 40
105 Reykjavík
http://www.simnet.is/bss
Netfang: bss@simnet.is
90