Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2001, Side 37

Náttúrufræðingurinn - 2001, Side 37
2. mynd. Gos að hefjast í Strokki við Geysi. Erlendir vísindamenn á fyrri öldum rituðu margt um íslenska hveri, einkum gosvirkni þeirra. Merkar aihuganir voru einnig gerðar á efnasamsetningu hveravatns og hverahrúðurs, sem og gróðri kringum hverina. Vangaveltur J. Tyndalls upp úr miðri 19. öld um bláleitan lit vatnsins ísumum hverum geta ásamt öðru hafa leitt til skýringar á bláma himinsins. - Geysers were afavourite subject of scientists visiting Iceland in past centuries, especially their eruptions. However, valuable work was also done on tlie chemistry, biology, and colour ofthe hot springs. Mynd/photo Leó Kristjánsson 2001. hvers vegna himinninn væri blár, og eru niðurstöður hans úr þeim enn í fullu gildi. Má velta því fyrir sér hvort rætur áhuga Tyndalls á bláma himinsins kunni að einhverju leyti að liggja í litbrigðum íslensku hveranna. Bláminn stafar í báðum tilfellum af því að örsmáar agnir, sem hvítt ljós fellur á, reynast gefa frá sér meira af bláu ljósi en rauðu. Fyrrnefndar tilrauna- niðurstöður Tyndalls leiddu, ásamt svipuðum niðurstöðum annarra, til víð- tækra kennilegra rannsókna á víxlverkun ljóss og efniseinda. Komu að þeim sumir þekktustu eðlisfræðingar heims, þeirra á meðal Rayleigh lávarður og Albert Einstein. Svo haldið sé áfram með hverina, þá tíundar Haraldur Sigurðsson (1991) efnagreiningar hins merka skoska efna- fræðings J. Blacks á sýnum af hveravatni og hverahrúðri, sem leiðangur J. Stanleys safnaði hér 1789. Haraldur hefur hinsvegar misst af öðrum stórmerkum efnafræðingi, Þjóðverjanum M.H. Klaproth sem lýsti svipuðum rannsóknum um svipað leyti. Grein eftir hann er skráð þannig hjá Royal Society: - Chemische Untersuchung des siedenden Quellwassers auf Island und des davon abgesetzten Kieseltuffs. Samml. Deutsch. Abh.3,1799,15-21. í æviskrám vísindamanna eftir J. Poggen- dorff er grein þessi sögð hafa birst nokkrum árum fyrr og einnig á frönsku. Mér hefur ekki tekist að ná í hana til að finna hvaðan sýni Klaproths komu. Klaproth gerði ýmsar 115

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.