Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2001, Síða 48

Náttúrufræðingurinn - 2001, Síða 48
Um pekkinguá ræktun og nýt/ngu/urtanna Þótt nú þekkingin á nafni og ytri einkennum fóðurjurtanna sje nauðsynleg byrjun, þá er hún út af fyrir sig auðvitað einskis virði í praktisku tilliti, ef henni er ekki samfara þekking á lífseðli og þróunarskilyrðum plöntunnar eða sambandi hennar við hina dauðu náttúru annars vegar og svo næringargildi hennar fyrir kvikfje vort hins vegar. Frá þessum tveim hliðum verðum vjer að þekkja hverja fóðurplöntu svo nákvæmlega sem auðið er. Meðan þessa þekkingu vantar, verður öll fóðurjurtaræktun á voru landi meira og minna af handa hófi og út í bláinn og öll fræðsla í þessum efnum á búnaðarskólum vorum helbert kák. ísafold 1897, Um íslenska fóðurjurtafrœði. að vísindaferill Stefáns sé að mestu á Möðruvallatímanum 1887-1902. Eftir það sveigjast störf hans að öðrum málum og hann skrifar: „Landsmálaþref eða pólitík og bótaník eiga ekki samleið, eða svo reyndist mjer, önnur hvor sú hefðarmey varð að víkja, og illu heilli varð hin gamla ástmey mín, bótaníkin, fyrir því.“ Enda þótt Stefán tæki aldrei lokapróf í fræðigrein sinni vann hann vísindalegt afrek sem mun halda nafni hans á lofti hér á landi um ókomna framtíð. Steindór Steindórsson frá Hlöðum, einn nemenda Stefáns, skrifaði ritgerð í tilefni af aldarafmæli Stefáns árið 1963 og þar stendur: „Af þáttum þeim, sem raktir hafa verið, má það ljóst verða að Stefán leysti hvarvetna af hendi mikil störf og góð þar sem hann kom nálægt. Hann var fyrirmyndarbóndi og félagsmálafrömuður í sveit sinni, skörulegur og víðsýnn alþingis- maður, kennari og skólastjóri með þeim ágætum, að fátítt er, en þó er það svo að þessi störf munu fyrnast, og mörg þeirra eru það nú þegar, og er það ekki nema lögmál lífsins um allan þorra daglegra starfa vorra. En um vísindastörf Stefáns er hægt að fullyrða, að þau munu ekki fymast svo lengi, sem nokkur maður leggur stund á íslenska grasafræði og sú fræðigrein verður kennd á íslenskri tungu. Ekki hefur Stefán þó skrifað nein kynstur um þessi efni. Ein dálítil bók, nokkrar stuttar ritgerðir í tímaritum og kennslubók er allt, sem eftir hann liggur prentað um þau efni. En vísindarit verða ekki mæld eftir blaðsíðufjölda, heldur því hvemig þau eru unnin, hvað nýtt þau hafi að færa og hversu haldgott efni þeirra sé.“ ■ HEIMILDIR Eyþór Einarsson 1964. Grasafræðingurinn Stefán Stefánsson. Náttúrufræðingurinn 13. 97-112. Steindór Steindórsson frá Hlöðum 1963. Stefán Stefánsson skólameistari - Aldarminning. Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands 60. 1- 128. Flóra 1. 1-128. Steindór Steindórsson frá Hlöðum 1986. Rannsóknarferðir Stefáns Stefánssonar skóla- meistara. Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Reykjavík. 132 bls. PÓST- OG NETFANG HÖFUNDAR Bjami E. Guðleifsson Rannsóknastofnun landbúnaðarins Möðruvöllum 601 Akureyri beg@rala.is 126 I
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.