Náttúrufræðingurinn - 2001, Síða 68
1. mynd. Lýsuafli á Islandmiðum 1915-2000 (þús. tonn). - Annual catch of whiting in
Icelandic waters 1915-2000 (thous. tons).
í fyrmefndri bók lýsir Bjami Sæmundsson
einnig lífsháttum lýsunnar og koma þar
efnislega fram eftirfarandi atriði: Heimkynni
eru í N-Atlantshafi austanverðu allt frá
Noregi til Miðjarðarhafs og Svartahafs.
Aðalheimkynni hér við land eru í hlýja
sjónum, einkum á svæðinu milli Vestmanna-
eyja og Reykjaness, og fæst stórlýsan þar á
djúpmiðum á útmánuðum. Þegar líður á
vorið gengur hún á grunn á 40-80 m dýpi til
hrygningar, en dregur sig aftur til djúpanna
undir veturinn. Annars virðist hún frekar
staðbundin og fara lítið norður með landinu
heitari tíma ársins, skv. yfirliti Bjama
Sæmundssonar.
Lýsan hrygnir, að sögn Bjarna Sæmunds-
sonar, aðeins í hlýja sjónum við suður- og
suðvesturströndina, á 30-60 m dýpi og í 6-
7°C heitum sjó, austan frá Ingólfshöfða og
allt að Snæfellsnesi. Hrygning fer fram
seinna en hjá öðrum þorskfiskum, eða frá
miðjum maí til miðs júlí. Eggin em smá (1-1,3
mm) og íjöldinn 250-500 þúsund. Seiðin em
fyrst í stað svipuð ýsuseiðum, en um 2 cm
löng má þekkja þau á langa fremri raufar-
ugganum. Þau leita botns 5 cm Iöng, sum á
gotstöðvunum en önnur berast norður með
vesturströndinni, norður og austur fyrir
land.
Lýsan lifir mest á ýmsum smáfiskum,
spærlingi, sandsíli og smásíld, en einnig á
fiskaseiðum, krabbadýrum, ormum og
skeldýmm. Hún er hraðvaxta og er í júlílok á
fyrsta sumri orðin 3-8 cm, 5 ára 44—61 cm og
8 ára 59-66 cm. Ur því vex hún ekki mikið og
verður líklega ekki eldri en 10 ára. Lýsan
hrygnir 3-4 ára að aldri, 30-40 cm löng.
Þessi lýsing Bjarna Sæmundssonar á lífs-
háttum lýsunnar hefur í stórum dráttum
verið tekin upp í síðari yfirlitsritum um fiska
á íslandsmiðum (sjá hér framar).
Lýsu er fyrst getið í vísindaritgerð í
lýsingu Friedrichs Faber (1829) á fiskum við
ísland og er þar um almenna lýsingu á útliti
146