Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 5

Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 5
HELGI HALLGRÍMSSON Vatnaskúfur, VATNADÚNN OG VATNABOLTI Cladophora AEGAGROPILA Kúlulaga vatnaþörungur í Mý- vatni hefur síðustu árin vakið nokki'a athygli vegna skrifa um ---------lífríki vatnsins og deilna sem risið hafa um nýtingu þess. Um er að ræða grænþörungstegund sem á fræðimáli kallast Cladophora aegagropila. Aðalform hennar eru greinóttir þræðir, sem vanalega mynda örlitla græna skúfa á steinum í vatninu eða litla dúnkennda hnoðra sem liggja lausir á botninum og rekur á strendur. Þræðirnir eru óvenjulega sverir og stífir af grænþörungi að vera og sjást vel með berum augum. Með stækkunargleri má greina einstakar frumur í þeim (1. mynd). I grunnum og næringarríkum vötnum getur þörungur þessi myndað egglaga eða kúlulaga bolta, sem oft eru 5-10 cm í þvermál og jafnvel allt að 30 cm við sérstakar að- stæður. Þessir knettir eru byggðir upp af sígreinóttum þráðum þörungsins, sem allir vísa út á við frá miðju. Þeir eru fagurgrænir og furðu stinnir, og halda sér vel þótt þeir séu teknir upp úr vatninu og jafnvel þurrkaðir. Kúlurnar eru mörg ár að vaxa og Helgi Hallgrímsson (f. 1935) er líffræðingur að mennt. Helgi var forstöðuinaður Náttúrugripasafns- ins á Akureyri í aldarfjórðung og ritstjóri Týlis - tímarits um náttúrufræði og náttúruvemd - í 15 ár. Hann hefur mest fengist við rannsóknir á íslenskum sveppum og vatnalífi og ritað bækur um þau efni auk fjölda tímaritsgreina. Helgi er búsettur á Egilsstöðum og fæst við ritstörf og grúsk. alls konar ásætur og aukefni geta sest í þær og gert þær þyngri og þéttari. Einnig geta myndast holrúm í þeim miðjum, þegar elstu þræðirnir deyja, og eiga þær þá til að fljóta upp. (I Sorpvatni á Sjálandi stigu þær upp á vorin og rak á land.) Talið er að kúlumyndun þessi sé afleiðing af hreyfingum vatnsins, sem vanalega orsakast af vindum. Þá taka hnoðrarnir að velta og hnoðast saman í bolta, en þörungurinn lagar vöxt sinn að því, enda er kúluformið hagstætt fyrir hann að ýmsu leyti. í Syðri-Flóa Mývatns er mikið af þessum kúlum, aðallega á 2-3,5 m dýpi (2. mynd). Þær eru misstórar og misþéttar eftir svæðum og mynda allstóra flekki bæði austan- og vestantil í flóanum. Mývetningar kalla þessar kúlur gjarnan „kúluskít", því stundum festast þær í netum og hindra veiði. Talið er að þær gegni mikilvægu hlut- verki í fæðubúskap Mývatns. Rannsóknir á botnlögum vatnsins sýna að Cladophora jókst verulega snemma á 17. öld (Árni Einarsson 1985, Arnþór Garðarsson og Ámi Einarsson 1991). „Kúluskítur er aðeins í Syðriflóa, og þekur hann þar víðáttumikil svæði. Á tveimur afmörkuðum blettum vex þörungurinn á allsérstæðan hátt. Þar myndar hver planta stóra kúlu, 10-15 smíþvermál, en af því vaxtarlagi er nafnið sennilega dregið. Engu er líkara en þúsundum tennisbolta hafi verið stráð þar um Náttúrufræðingurinn 70 (4), bls. 179-184, 2002. 179
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.