Náttúrufræðingurinn - 2002, Blaðsíða 70
breytingar. Breytingar á seltu eru mestar í
yfirborðssjó en í djúpsjónum er nokkuð
stöðugt seltuhlutfall.
Vatnsþrýstingur hafsins er mjög mikill. Á
100 m dýpi er þrýstingurinn 10 loftþyngdir
miðað við 1 loftþyngd við yfirborð sjávar. Á
19. öld héldu menn að líf gæti ekki þrifist í
hafdjúpunum, en nú er vitað að jafnvel á
dýpstu svæðum hafsins er lífverur að finna.
Sjávarlífverur á miklu dýpi eru oft mjög
sérhæfðar og standast þannig mikinn
þrýsting.
Mjög mikið er af lífrænum ögnum í sjó.
Agnir sem eru stærri en 1,0 pm eru sýnilegar
berum augum og hafa tilhneigingu til að falla
til botns. Agnir sem eru minni en 1,0 pm
sökkva hins vegar mjög hægt og dreifast lá-
rétt vegna brownískrar hreyfingar (Butcher
o.fl. 1998). Brownísk hreyfing er það nefnt
þegar agnir í hafinu hreyfast til vegna
stöðugra smásærra árekstra við vatns-
sameindir og aðrar agnir í sjónum. Þannig er
það ekki einungis eðlisþungi agna sem
ræður því hve hratt þær sökkva til botns
heldur einnig stærð þeirra.
Smáar agnir í hafinu eru annaðhvort
lifandi (bakteríur) eða dautt efni. Yfirleitt er
mjög lítið af uppleystu lífrænu efni í sjó.
Meðaltalsmagn lífræns kolefnis (TOC) er um
3 mg/1 eða 3 milljónustuhlutar (ppm -
massahlutfall).
Lífrænt efni sest lil í setlögum hafsins og
hverfur þannig burt úr hafinu. Áætlað er að
hver tiltekin eining af lífrænu efni dveljist í
hafinu í um 10.000 ár að meðaltali.
■ NIÐURSTAÐA
Niðurstaðan er því sú að hafið og lífríki þess
taka virkan þátt í temprun loftslags og
hringrás margra efna um jörðina. Flest efni
og efnasambönd enda að lokum í hafinu og
tekur það nokkur þúsund ár fyrir hafið að
dreifa efnunum og þynna þau út. Með
frekari rannsóknum á hafinu má öðlast betri
skilning á vistkerfi jarðarinnar, mögulegum
loftslagsbreytingum og öðrum þeim ferlum
náttúrunnar er varða okkur mannfólkið miklu.
■ HELSTU HEIMILDIR
Baird, Colin 1995. Environmental Chemistry.
New York.
Butcher, Samuel S., Charlson, Robert J., Orians,
Gordon H. & Wolfe, Gordon V. 1998. Global
Biogeochemical Cycles. London.
Byatt, Andrew, Fothergill, Alastair & Holmes,
Martha2001. The Blue Planet.
Calvin, William H. The Great Climate Flip-flop.
http:Wwww.theatlantic.com/issues/98jadn/
climate.html
Corbis-myndabankinn. http:Wwww.corbis.com
Geimferðastofnun Bandaríkjanna NASA.
http:Wwww.nasa.gov
Graedel, Thomas & Crutzen, Paul J. 1993. At-
mospheric Change. An Earth System Perspec-
tive. New York.
Jón Benjamínsson 1992. Orðaskrá í jarðfræði og
skyldum greinum. Reykjavík.
Lalli, Carol M. & Parsons, Timothy R. 1993.
Biological Oceanography: An Introduction.
Oxford.
The Oxford Dictionary of Quotations 1999. Ox-
ford.
Pinet, Paul R. 2000. Invitation to Oceanogra-
phy. Boston.
Unnsteinn Stefánsson 1991. Haffræði I.
Reykjavík.
PÚST- OG NETFANG HÖFUNDAR
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
Línuhönnun hf.
Suðurlandsbraut 4a
108Reykjavík
ingibjorg@Ih.is
244