Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2002, Blaðsíða 50

Náttúrufræðingurinn - 2002, Blaðsíða 50
aðra hópa dýra. Rætt verður almennt um langtímarannsóknir en fuglar teknir sér- staklega fyrir með dæmum sem eiga að sýna kosti og galla langtímarannsókna. Upp- bygging og tilgangur langtímarannsókna ásamt helstu atriðum sem upp koma við slíkar rannsóknir verða skoðuð. ■ LANGTÍMARANNSÓKNIR Áður en lengra er haldið er rétt að skilgreina langtímarannsóknir og hlutverk þeirra. Langtímarannsóknir eru sjaldnast skipu- lagðar frá upphafi heldur þróast eftir því sem efni, ástæður og áhugi rannsakenda leyfir. Sumar snúast aðallega um að safna gögnum á skipulegan hátt til lengri tíma en aðrar eru studdar tilraunum sem leysa eiga sértæk vandamál (Dunnet 1991 a). Til að rannsókn teljist langtímarannsókn verður að miða við einhvern lágmarkstíma. Sjaldgæft er að rannsóknir standi lengur en þrjú ár, en það er oft sá tími sem doktorsnám tekur eða fé fæst til (Krebs 1991). Ungi af langlífri fuglategund sem skríður úr eggi í byrjun svo stutts tímabils er ekki einu sinni orðinn kynþroska þegar því lýkur. Þetta á t.d. við um marga sjófugla (Croxall og Rothery 1991). Því má nærri geta að rannsóknir sem spanna aðeins þrjú ár standa alls ekki nógu lengi til að hægt sé að skoða helstu stofnþætti eins og lífslíkur og nýliðun. Þá eru litlar líkur á að rannsakandi verði vitni að sjaldgæfum atburðum, sem hafa áhrif á stofna, á svo stuttum tíma. Hér má nefna þætti eins og plágur og óveður (Bradley o.fl. 1991, Hafner og Fasola 1997, Johnson 1997). Erfitt er að setja mörk milli langtíma- rannsókna og styttri rannsókna en miðað við ofangreindar ástæður er e.t.v. ekki frá- leitt að miða við áratug. Þessi mörk fara þó líklega mest eftir viðfangsefninu. Flokka má langtímarannsóknir nánar (Pienkowski 1991): 1) Vöktunarrannsóknir. 2) Stofnrannsóknir á tegundum sem ekki eru í hættu (oft af akademískum áhuga). 3) Rannsóknir á tegundum sem eru eða gætu verið í hættu. VöKTUN Flestir eru sammála um að verndun náttúrunnar sé nauðsynleg. Eitt helsta tæki náttúruvemdar er vöktun (Pienkowski 1991). Vöktun (monitoring) felur í sér að fylgst er með lífverustofnum og/eða um- hverfi þeirra á skipulegan hátt. Gögnum er safnað reglulega með sambærilegum að- ferðum og ástand viðkomandi einingar metið eða mælt. Hlutverk vöktunar er tvíþætt: að stuðla að náttúruvemd og auka skilning á viðkomandi vistkerfi. Þannig getur vöktun varað við óæskilegum breytingum áður en þær verða, veitt upplýsingar um breytileika vistkerfis og metið árangur verndaraðgerða (Ámi Einarsson 1994, Nettleship 1997). Lrklegter að markmiðin séu oftast á þessa lund þó svo að áherslumunur sé milli rannsókna. Til að árangur vöktunar skili sér þarf góða skipu- lagningu. Staðla þarf gagnaöflunaraðferðir og ákvarða markmið vöktunar. Loks þarf að meta hvort markmiðin nást og grípa til aðgerða ef nauðsyn krefur (Greenwood o.fl. 1995). Þáttur samofinn vöktunarrannsóknum er notkun fugla sem vísa (indicator) á umhverfi sitt. Til að stofn dýra geti þrifist þarf umhverfið sem stofninn lifir í að standa undir grunnþörfum hans. Með grunnþörfum er átt við fæðu, skjól, hreið- urstæði o.s.frv. og með umhverfi er átt við alla lífræna og ólífræna þætti sem tengjast stofninum með einum eða öðrum hætti. Ef umhverfið breytist til hins verra fyrir stofn sem er háður því hefur það oftast í för með sér breytingar á stærð eða samsetningu stofnsins. Þetta býður upp á þann möguleika að nota ákveðinn stofn dýra sem vísi á umhverfisbreytingar. Til að það sé hægt er nauðsynlegt að þekkja kröfur tegundarinnar og til þess að þekkja þær er þörf á langtímarannsóknum (Pienkowski 1991). Ef þær liggja fyrir og vistfræði tegundarinnar er vel þekkt má nota viðgang einstakra stofna sem mælikvarða á þá umhverfisþætti sem stofninn er háður. Sem umhverfisvísar eru fuglar hentugri en flestir aðrir hópar dýra. Þeir eru stórir og vel sýnilegir og það auðveldar rannsóknir á 224
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.