Náttúrufræðingurinn - 2002, Blaðsíða 64
Bréf 77/ Náttúrufræðingsins
Ofveiði, OF LÍTIL VEIÐI
EÐA KJÖRVEIÐI
Eftirfarandi bréf til Náttúrufrœðingsins er endurbirt vegna mistaka sem urðu
við prentun þess í 2.-3. hefti 70. árg. Er höfundur beðinn velvirðingar á þeim.
Líffræðingar sem leggja á ráðin um nýtingu
dýrastofna á landi og fiskistofna í vötnum
hafa annað líkan við ályktanir sínar en
líffræðingar sem leggja á ráðin um nýtingu
fiskistofna sjávar. I líkaninu á landi er ástand
dýrastofnsins á öllum aldri frá tímgun metið
og síðan litið til þess við ráð um nýtingu, en
við ráð við nýtingu fiska hafsins er litið til
stærðar stofnsins í nýtanlegum árgöngum,
en ekki til ástands stofnsins, þ. e. a. s. lífs-
skilyrða eins og þau birtast í þrifum á öllum
aldri. Þetta á ekki aðeins við ísland, heldur er
almennt um heiminn. Sú fræðigrein er
frumstæð sem ekki á samstætt líkan fyrir
sama viðfangsefni, eins og hér reynist vera.
Til marks um hversu sneydd líffræði
hafsins er rannsókn á næringu, er ritið Haf-
rannsóknir við Island, sem kom út í tveimur
bindum (1988 og 1990), tæpar 800 blaðsíður.
Atriðisorðaskrá fyrra bindis, en það nær til
ársins 1937, geymir orðið næringu, en þó
ekki í sambandi við þrif fiska; í skrá síðara
bindis er það alls ekki að finna.
Höfundurinn, Jón Jónsson, fjallaði reyndar
um samhengi stofnstærðar og vaxtar í
Náttúrufræðingnum 1964 (Ofveiði og
kjörveiði, bls. 4—8), m. a. með þessum orðum:
„Of lítil veiði getur verið jafn skaðleg og of
rnikil veiði. Það hefur t. d. komið í ljós, að þau
ár, sem mjög sterkir árgangar af þorski hafa
verið í aflanum, hefur fiskurinn vaxið hægar
en þegar lítið hefur verið af fiski í sjónum.
Við skýrum þetta með því, að þegar mikið er
um fisk sé ekki nóg fæða í sjónum fyrir allan
þann fjölda.“
Enga athugun af þessu tagi er að finna í
Hafrannsóknum við Island, enda vantar
þessa grein Jóns í ritaskrá síðara bindis.
Orðin í heiti greinarinnar, ofveiði og
kjörveiði, koma varla fyrir í atriðisorðaskrá
ritsins, ofveiði aðeins einu sinni í fyrra
bindinu (um lúðu og skarkola) og í síðara
bindi líka aðeins einu sinni, vegna athugana
frá því fyrir seinni heimsstyrjöld, en orðið
kjörveiði kemur aldrei fyrir í skránni.
Vel væri, ef ritstjórn Náttúrufræðingsins
tæki upp þráðinn í grein Jóns frá 1964 og
efndi til rökræðna í ritinu um ofveiði,
vanveiði og kjörveiði undir því sjónarhomi
sem hann hafði þá.
Björn S. Stefánsson, dr. scient.
Kleppsvegi 40
105 Reykjavík
http://www.simnet.is/bss
Netfang:bss@simnet.is
238