Náttúrufræðingurinn - 2002, Blaðsíða 76
■ LANGA FERÐIN Á
VIRKJUNARSLÓÐIR
NORÐAN VATNAJÖKULS
Langa ferðin var farin á slóðir Jökulsánna í
Fljótsdal, á Dal eða Brú og á Fjöllum, dagana
21.-25. júlí. Þátttakendur voru um 100 og
farið var á þrem bílum frá Guðmundi Jónas-
syni hf. Fararstjórar voru Freysteinn
Sigurðsson og Guttormur Sigbjarnarson
jarðfræðingar og Eyþór Einarsson grasa-
fræðingur, en þeir höfðu einnig leiðsögn í
ferðinni. Leiðsögn við Snæfell (22. júlí) hafði
Skarphéðinn G. Þórisson líffræðingur og við
Eyjabakka Hákon Aðalsteinsson vatnalíf-
fræðingur, leiðsögn um Hvannalindir (23.
júlí) Kári Kristjánsson landvörður, en
leiðsögn um Jökuldal og nálægt hálendi (24.
júlí) hafði Páll Pálsson, fræðimaður frá
Aðalbóli. Voru þær leiðsagnir allar með
miklum ágætum. Gist var allar næturnar í
tiltæku gistirými í Jökuldalshreppi hinum
forna, Skjöldólfsstaðaskóla, Brúarásskóla
og Hótel Svartaskógi á Hallgeirsstöðum í
Hh'ð.
Miðvikudaginn, 21. júlí, var lagt upp frá
Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík um kl. 9 og
ekið vestur, norður og austur um til Jökul-
dals. Áfangi var í Borgarnesi en hádegishlé
kl. 12-13 við Staðarskála í Hrútafirði. Aftur
var áfangi í Varmahlíð í Skagafirði en kaffihlé
við Shell-skálann utan Akureyrar upp úr kl.
16. Áfangar voru enn í Reynihlíð við
Mývatn upp úr kl. 18 og í Möðrudal á
Fjöllum um kl. 20, en komið var í gististaði á
Jökuldal um og upp úr kl. 21. Veður var
skýjað þegar upp var lagt en létti til þegar
kom í Þingeyjarþing. Þurrt var að mestu,
hægviðri og hiti 10-15°C. Skyggni var gott á
leiðinni.
Fimmtudaginn, 22. júlí, var lagt upp um kl.
9 frá Brúarási og ekið yfir Lágheiði og upp
Fell, Fljótsdal og Fljótsdalsheiði inn undir
Laugará, en þar var staldrað við og
skyggnst um inn til Eyjabakka og um öræfin,
auk þess sem litið var á jökulrispur og
háfjallagróður. Þaðan var haldið áfram að
Eyjabakkavaði á Jökulsá í Fljótsdal en þar
var gert hlé kl. 11-12, skoðaðir fossar og
flúðir í Jökulsá, fylgst með hrossamanna-
hópi ríða yfir á vaðinu, litið á gróður og
notið útsýnis til Snæfells. Fram var haldið
inn á Snæfellsnes, þar sem gert var hádegis-
hlé kl. 12-13VÍ í góðviðrinu á græn-
gróðrinum, en Hákon sagði frá svæðinu.
Þaðan var ekið að Snæfellsskála, þar sem
Skarphéðinn tók við ferðinni, fylgdi henni út
á Sauðárhnjúk og lýsti landinu. Kaffihlé var
svo tekið við skálann, en þaðan var farið um
1 l'h og ekið til baka niður í Fljótsdal og út
Skóga og Velli á Egilsstaði, þar sem áfangi
var tekinn um kl. 20, en komið var aftur um kl.
21 á gististaði á Jökuldal. Dreift var á leiðinni
nokkrum eintökum af tímaritinu „Glettingi“
(8. árg. 2.-3. tbl.), sem fjallar um Snæfells-
slóðir og hugmyndir að virkjunum á Jökulsá
í Fljótsdal og Jökulsá á Dal. Veður var bjart
og hægt, suðaustan gola, þurrt og frekar
léttskýjað, hiti 10-12°Cáfjöllum.
Föstudaginn, 23. júlí, var lagt upp um kl. 9
og ekið um Jökuldalsheiði í Möðrudal, þar
sem hafður var áfangi. Þaðan var ekið inn
öræfi, litið yfir Arnardal af hæðinni austan
dalsins, en ekki þótti rútufært niður að
Dyngju, og svo áfram inn undir Kreppu-
tungu, þar sem skoðuð voru ummerki
hamfarahlaups og vikurfalls við suðurenda
Þorlákslindahryggs og við Kreppubrú, en
þangað var komið um tólfleytið. Ekið var
þaðan upp og yfir Krepputungu og um brú á
Jökulsá á Fjöllum við Upptyppinga og um
vikrana upp að Dreka undir Dyngjufjöllum.
Þar var tekið hádegishlé kl. 13Vá— 1 5‘á og
gengu þá margir inn í Drekagil, en ófært
reyndist inn að Öskjuvatni fyrir snjóum. Var
þá ekið til baka og um Jökulsárbrú og
Krepputungu í Hvannalindir, þar sem kl. 18-
19 var notið leiðsagnar Kára Kristjánssonar
og tekið kaffihlé. Veður var þá farið að
rysjast og var ekið tafarlítið aftur niður á
Jökuldal. Farið var frá Kreppubrú um 20*/2,
um Þríhyrningsleið, hjá Brú um kl. 22 og
komið í gististaði um og upp úr kl. 23 um
kvöldið. Veður var drungalegt um daginn,
norðvestan og norðan gola eða kæla, skýjað
og fjallaþoka, skúrir og hráslagi undir kvöld,
hiti 8-10°C og fjallaskyggni lítið.
Laugardaginn, 24. júlí, var lagt upp um kl.
10 og ekið inn Jökuldal. Var þá Páll Pálsson
kominn til leiðsagnar um lönd og leiðir og
250