Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2002, Blaðsíða 11

Náttúrufræðingurinn - 2002, Blaðsíða 11
ÆVAR PETERSEN OG SIGURÐUR INGVARSSON Fuglalíf í Borgareyjum og Á Borgarskarfa- SKERJUM Á BORGARFIRÐI Borgareyjar og Borgarskarfasker eru nokkrar smáeyjar og sker á miðjum Borgarfirði vestra og heyra tii kirkjunni á landnáms- jörðinni Borg á Mýrum. Þær lágu undir Rauðanes fyrrum en sagt er að bóndi þar hafi fyrir margt löngu gefið þær Borgarkirkju sér til sálarheilla vegna framhjáhalds. Hefur það átt sér stað einhvern tímann fyrir 1570, því þá er talað um að Borgarkirkja eigi eggver í Borgareyjum (íslenskt fornbréfa- safnXV). Sumarið 2000 könnuðu höfundar fuglalíf eyjanna með skipulegum hætti og er ekki vitað til þess að jafnítarleg athugun hafi verið gerð á fuglalífinu þar áður. I heild er mjög takmarkaðar upplýsingar að hafa um fuglalíf eyjanna frá fyrri tíð. ■ EYJALÝSING Borgareyjar eru litlar graseyjar og graslaust sker sem stendur upp úr á flóði. Um fjöru Ævar Petersen (f. 1948) lauk B.Sc. Honours-prófi í dýrafræði frá Aberdeenháskóla í Skotlandi 1971 og doktorsprófi í fuglafræði frá Oxfordháskóla á Englandi 1981. Ævar hefur unnið á Náttúrufræði- stofnun íslands frá 1978 og er nú forstöðumaður Reykjavíkurseturs stofnunarinnar. koma smásker úr sjó á nokkrum stöðum umhverfis eyjarnar. Að auki tengja víðáttumiklir sandflákar þær saman og teygja sig talsvert vestur frá þeim, en sand- og malarrif liggja til lands í norðri. Fimm lítil sker rnynda sameiginlega Borgarskarfasker. Heiti á einstökum eyjum eða skerjum hafa ekki komið í leitirnar í rituðum heimildum þrátt fyrir nokkra eftirgrennslan. Á Ömefna- stofnun Islands er að finna örnefnalýsingu fyrir Borg á Mýrum en þar er eyjanna að engu getið, hvað þá heita á einstökum eyjum eða skerjum. Þar er einnig að finna landamerkjaskrá frá árinu 1884, en í henni eru eyjarnar aðeins tilgreindar undir sam- heiti sínu. Þær upplýsingar sem við höfum um nöfn á eyjunum eiguni við að þakka Guðjóni Viggóssyni í Rauðanesi (munnl. uppl. 2001). Til að aðgreina fuglalíf í hverri eyju og skeri fyrir sig meðan á útivinnu stóð gáfum við þeim númer (1,2, 3 o.s.frv.) og er þeim númerum haldið hér til glöggvunar (1. mynd). Sigurður Ingvarsson (f. 1958) lauk vélfræðinámi frá Vélskóla Islands árið 1979 og síðan sveinsprófi í vélvirkjun. Hann er búsettur í Borgarnesi og sinnir viðhaldsstörfum í álveri Norðuráls á Grund- artanga. Sigurður hefur í frístundum stundað fugla- merkingar fyrir Náttúrufræðistofnun íslands frá árinu 1987. Náttúrufræðingurinn 70 (4), bls. 185-196, 2002. 185
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.