Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2002, Blaðsíða 16

Náttúrufræðingurinn - 2002, Blaðsíða 16
Mýrum (óbirtar uppl.). Annar höfunda (S.I.) kom í Skarfasker sumarið 2001 og þá voru engir skarfar verpandi, þannig að varp þeirra er enn óstöðugt í eyjunum. Grágæs Anser anser. Alls fundust átta grágæsarhreiður; fimm í aðaleyjunni (eyju nr. 3) en þrjú í hinum hluta Innrieyjar (eyju nr. 2). Fimm hreiðranna voru útleidd en fimm egg í hverju hinna þriggja. Varla eru skilyrði til varps fyrir grágæsir í öðrum eyjum og skerjum, sem eru annaðhvort með mjög snöggum gróðri eða gróðurlaus með öllu. Engu að síður var Fremriey (eyja nr. 4) greinilega mikið notuð af grágæsum til beitar, eins og mikill gæsaskítur benti til, en þar voru engin hreiður. Þegar Kristinn H. Skarphéðinsson kom í Borgareyjar 13. ágúst 1975 voru þar fyrir grágæsir í sárum og tugir á sjónum í grennd við eyjarnar. Því er ljóst að nokkuð af gæsum heldur þar lil meðan þær eru ófleygar og eru að skipta um fjaðrabúning síðsumars. Stokkönd Anas platyrhynchos. Tvö stokkandarhreiður fundust í könnuninni, eitt í hvorum hluta Innrieyjar. Annað var útleitt en hitt upprifið, líklega af völdum máfa. Ennfremur flaug ein kolla úr eyju nr. 3 og hefur e.t.v. verið þar með unga, af atferli hennar að dæma. Toppönd Mergus serrator. Tvö topp- andarhreiður fundust, bæði í eyju nr. 3, vel falin í melþúfum. Eitt egg var í öðru þeirra en hitt var upprifið og eggin étin, líklega af máfum. Stakt toppandarpar sást á litla voginum sem er vestan í milli eyja nr. 2 og 3. Hugsanlegt er að aðeins eitt par hafi orpið í eyjunum og það hafi byrjað á nýju hreiðri eftir að hið fyrra var rænt. Æðarfugl Somateria mollissima. Samtals fundust 16 æðarhreiður í Ijónjm eyjanna, þar af sjö í eyju nr. 2, sex í eyju nr. 3, tvö í eyju nr. 4 og eitt í eyju nr. 6. Egg voru í þeim öllum, að meðaltali 4,0 egg í hreiðri (vikmörk = 1-7, staðalfrávik = 1,5). Ekkert æðarhreiður fannst upprifið, eins og e.t.v. var við að búast í jafnmiklu máfavarpi og í þessum eyjum. Þareð engin æðarhreiður voru útleidd hefur fyrstu eggjunum ekki verið orpið fyrr en í fyrsta lagi um miðjan maí (miðað við um 28 daga álegu) og er það fremur seint. Æðarfugl hefur orpið í Borgareyjum frá örófi alda, því eggvers er getið þar 1570 (íslenskt fornbréfasafn XV). Rita Rissa tridactyla. Fjögur rituhreiður voru gjármegin í eyju nr. 2 og ómögulegt að koma auga á þau nema mjög nærri. Eitt hreiður var á norðausturhorni eyju nr. 3. Hreiðrin voru öll tóm þótt fuglamir væru við. Aðalrituvarpið var í skeri nr. 5, alls 91 hreiður og mörg þeirra með eggjum. Samtals voru því 96 hreiður á athugunarsvæðinu. Rituvarp var a.m.k. á skeri nr. 5 sumarið 2001 (S.I.). Ekki hefur verið kunnugt um rituvarp í Borgareyjum né á Borgarskarfaskerjum hin síðari ár. Rituvarp kom til dæntis ekki fram í þessum eyjum við könnun 1983 (sbr. Arnþór Garðarsson 1996). Varpið er að líkindum mjög nýlegt enda lítið enn sem komið er. Þó var búið að stofna til þess vorið 1998 þegar Guðjón Viggósson í Rauðanesi (rnunnl. uppl. 2001) átti leið framhjá skeri nr. 5. IngibergurBjarnason í Rauðanesi kveður varpið hafa verið þar í aðeins nokkur ár (munnl. uppl. 2001). Svartbakur Larus marinus. Alls fundust 12 svartbakshreiður í sex eyjanna. Sjö hreiður voru í skeri nr. 5 en eitt í hverri eyju nr. 1,2,4, 6 og 8. Langflest hreiðranna (10) voru útleidd og litlir ungar skammt frá, en eitt var með þremur eggjum og annað með tveimur eggjum. Fjöldi fullorðinna svart- baka sem sáust kringum skerin og sýndu varpatferli (22 fuglar) var í fullu samræmi við fjölda fundinna hreiðra. Kristinn H. Skarphéðinsson sá svartbaka í Borgareyjum 13. ágúst 1975. Líklegt þykir að þeir hafi orpið þarna um aldir. Sílamáfur Larus fuscus. Ólíkt svartbaki, sem varp dreift um eyjarnar, þá fundust verpandi sílamáfar í aðeins tveimur þeirra, alls 19 hreiður, og aðeins í melgrónu eyjunum (Innriey). Voru tóll'hreiður í eyju nr. 2 en sjö í eyju nr. 3. Egg voru í þeim öllum, að meðaltali 2,4 egg í hreiðri (vikmörk = 1-3, staðalfrávik = 0,8). Fjöldi fullorðinna fugla sem voru með varpatferli var hinn sami og fjöldi fundinna hreiðra (19 fuglar). Þetta er í fyrsta sinn sem sílamáfsvarp er skráð í Borgareyjum. Tegundinni hefur 190
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.