Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2002, Blaðsíða 20

Náttúrufræðingurinn - 2002, Blaðsíða 20
hvort það hafi verið toppskarfur eða díla- skarfur. En presti þótti skarfar vera svoddan hræfuglar að slíkur matur skyldi aldrei koma inn á hans heimili. Annað var uppi á teningnum hjá öðrum Borgarpresti ónefnd- um sem þótti skarfur góður til átu. Getur Ásgeir þess að súrsaðar skarfslappir hafi verið á boðstólum hjá presti og honum þótt þær góðar. Þetta er eina skiptið sem höfundar hafa rekist á heimild um að skarfs- lappir hafi verið nýttar til matar. I yfiriits- ritinu íslenskir sjávarhœttir er slíkra nytja t.a.m. ekki getið (Lúðvík Kristjánsson 1986). í örnefnalýsingu fyrir Rauðanes, skráðri 1939, er þess getið að Borgarlending heiti þar sem Borgarmenn lentu með hey og önnur eyjagögn úr Borgareyjum (Kristín Ólafsdóttir 1939). í fasteignamati 1942 er fuglatekja og selveiði enn talin til hlunninda á Borg. Ekki er greint frá því hver þessi fuglatekja hafi verið, en líklegast er að átt sé við lundakofu, hugsanlega einnig skarfatekju. I bók Jóns Helgasonar (1967) er þess getið að talsverð fuglatekja hafi verið í Borgar- eyjum. Hann tilgreinir skarfsunga og lundakofu, svo og nokkra selveiði. í fasteignamati 1970 er á hinn bóginn ekki getið neinna hlunninda af eyjunum (afrit af fasteignaskrá 1970 frá Fasteignamati ríkisins). Nú á tímum eru Borgareyjar lítið nytjaðar (Búnaðarsamband Borgarfjarðar 1993); meltekja löngu aflögð en lundi er háfaður lítið eitt frá Rauðanesi, 250-300 fuglar á ári (Guðjón Viggósson og Ingibergur Bjarnason, Rauðanesi, munnl. uppl. 2001). Guðjón kannaðist ekki við að selur hafi verið nýttur í Borgareyjum, svo selveiði hefur líklega lagst af fyrir seinna stríð, en fjölskylda Guðjóns keypti Rauðanes 1935. Kristinn H. Skarphéðins- son getur þess í óbirtri dagbók sinni að tveir kópar hafi veiðst 12. og 13. ágúst 1975. Einn og einn selur hefur sjálfsagt verið drepinn öðru hverju í eða við eyjarnar, þótt nýting selahlunninda hafi ekki verið með skipulegum hætti. Minkur hefur fundist í Borgareyjum (Guðjón Viggósson, munnl. uppl. 2001), þ. á m. sumarið 1981 (Viggó Jónsson, munnl. uppl. 1982). Hættan á því að minkur komist út í eyjarnar hefur greinilega aukist undan- farna áratugi því Stóreyrin, sem var langt úti á firði, hefur sífellt teygt sig lengra og lengra til lands (Viggó Jónsson og Ingveldur R. Guðjónsdóttir 1984). Er nú svo komið að ganga má þurrum fótum um malarrif þakið kræklingi úr Stekkjarhöfða við Rauðanes út í Borgareyjar. Ekki varð vart við mink né ummerki eftir hann þennan júnídag sem eyjarnar voru kannaðar. Fuglum sem verpa í holum eins og lundinn er alvarleg hætta búin ef minkur nær fótfestu í eyjunum. Þannig urðu eyjarnar á sunnan- verðum Breiðafirði fyrir miklum skakka- föllum af völdum minks fyrir 40-50 árum (Kristinn B. Gíslason 1995) og hefur lundavarp enn ekki jafnað sig. Áratugir geta liðið uns lundi nemur land á ný þar sem honum hefur verið útrýmt, jafnvel þótt mink sé haldið niðri. Því verður að sporna með öllum tiltækum ráðum við landnámi minks í Borgareyjum. ■ ÞAKKIR Kærar þakkir fyrir veitta aðstoð við talningar og aðra útivinnu fá Guðbjörg Bergs, Magnús Magnússon og Þorgerður Guðmundsdóttir. Guðjóni Viggóssyni í Rauðanesi eru þakkaðar margvíslegar upplýsingar, þ. á m. um eyjaheiti, einnig Ingibergi Bjarnasyni, Rauðanesi, fyrir upplýsingar um lundaveiði og rituvarp. Örnefnastofnun íslands veitti aðgang að örnefnaskrám fyrir jarðir á þessum slóðum. Kristinn H. Skarphéðinsson lét okkur góðfúslega í té ljósrit af dagbókar- færslu úr Borgareyjum. Pálína Héðins- dóttir, bókasafnsfræðingur á Náttúru- fræðistofnun íslands, aðstoðaði við öflun heimilda. Að endingu aðstoðaði Guð- mundur Guðjónsson, landfræðingur á Náttúrufræðistofnun, við að mæla stærð eyjanna og Lovísa G. Ásbjörnsdóttir teiknaði 1. mynd. Þeim er öllum þökkuð aðstoðin. 194
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.