Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 19

Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 19
æti í unga sína. Höfundar sáu aftur á móti mikið af brotnum kúfskeljum á klöppunum í eyjunum. Þær hafa máfarnir tínt á leirunum, flogið með í loft upp og sleppt á klappimar til að brjóta skeljarnar og éta innihaldið. Á nokkmm stöðum voru litlir rauðmagar (15- 20 cm langir) sem svartbakar hafa líklega veitt umhverfis eyjarnar en ekki étið. Slíkt fæðuatferli er vel þekkt hjá svartbaki og er hann því oft nefndur veiðibjalla. Æðar- og fýlsvörpin höfðu ekki orðið fyrir skakkaföllum af völdum máfa; engin upprifin æðarhreiður fundust og næsta fáar fýlsskálar vom tómar. Tómu rituhreiðrin í Innriey gætu bent til þess að máfar hafi verið búnir að ræna úr þeim áður en könnunin hófst en samt er líklegra að þau hafi misfarist af öðrum völdum, s.s. vegna atferlis fuglanna sjálfra, því um mjög nýlegt varp er að ræða og fuglarnir eflaust ungir og óreyndir. Kannski var þetta fyrsta árið sem rita varp í Innriey. Áberandi munur var á vali hreiðurstaða hjá svartbökum og sílamáfum. Svartbakar verpa jafnan á berangri og í Borgareyjum urpu þeir á gróðurlausu skerjunum eða þar sem gróður var snöggur, og var hreiðrunum yfirleitt hreykt á skerjunum. Sflamáfar byggðu hreiður sín oftast á stöðum sem lágu lágt, jafnvel í hálfgerðum felum. Hreiðrin voru í skorningum milli melþúfna inni í lundabyggðunum eða í halla á jöðrum eyjanna, og einungis í meleyjunum (Innriey) ólíkt hreiðrum svartbakanna. ■ HLUNNINDI Borgareyjar voru nytjaðar fyrrum, til heyöflunar, meltekju og hlunninda af fuglum og selum. Elsta heimildin sem við höfum fundið er í Islensku fornbréfasafni XV frá 1570, þar sem getið er eggvers í Borgareyjum í eigu Borgarkirkju. Æðarvarp var á þessu tímabili fyrst og fremst nytjað til eggja. JarðabókÁrna og Páls frá 1709 (1925 og 1927) segir einnig að lítilsháttar eggver sé í Borgareyjum. Ennfremur telja þeir lunda- og fiðurtekju til hlunninda á Borg en „brúkast ekki til gagns“ (bls. 370). Þótt Borgareyjar séu ekki nefndar á nafn er líklegt að þessi hlunnindi séu þaðan. Ennfremur sé dúntekja „ekki yfir fjórðung á ári“ (bls. 370), en í þá daga var fjórðungur tæp 5 kg og æðardúnn mældur óhreinsaður. Þurfti dún úr 12-15 hreiðrum í hvert kfló af óhreinsuð- um dún (sbr. Lúðvík Kristjánsson 1986: 308). Nytjuð æðarhreiður á Borg hafa því aðeins verið 60-75 árið 1709. Þótt einhver hreiðranna hafi verið í Borgareyjum hafa þau eflaust flest verið í öðrum eyjum sem tilheyra Borg, þ.e. Grjótey, Kiðaneseyjum o.fl., skammt frá Þursstöðum. Borg er nefnd í Jarðatali Johnsens (1847) þar sem segir að 1804 hafi jörðin haft hlunnindi af æðarvarpi og fuglaveiði. Borgareyjar eru ekki nefndar í þessu samhengi og því óljóst hvort hlunnindi þessi hafi verið upprunnin þaðan, þótt það sé líklegt, a.m.k. fuglaveiðin. Aftur á móti er kópaveiði og eggver talin í Borgareyjum 1854 skv. skýrslum um landshagi, en ekki talið svara kostnaði að nýta þau hlunnindi (Ólafur Pálsson 1861). Eggin hafa hugsan- lega verið svartbaksegg, auk æðareggja. Varðandi kópaveiðina þá er óljóst hvort um er að ræða landsel eða útsel. Hitt er ljóst að varla hefur verið um að ræða aðra staði en sker nr. 1 og eyju nr. 4 þar sem selur hefur getað látrað sig. Melgresi hefur greinilega verið jafnmikið í þá daga og það er í dag, því sama heimild talar um að 2-3 skipsfarmar af mel fáist úr Borgareyjum. Fjöldi æðarhreiðra í Borgareyjum virðist ekki hafa breyst að neinu marki frá því fyrir tveimur öldum. Að líkindum hefur verið hætt að nytja varpið áður en 20. öldin gekk í garð og hlunnindin ekki síður verið egg en dúnn. Sigurður Stefánsson (1917) nefnir ekki dúntekju á Borg 1914, þótt önnur hlunnindi Borgareyja hafi verið nýtt fram eftir öldinni. Ásgeir Bjarnason frá Knarrarnesi (1938) lýsir ólíku viðhorfi Borgarpresta til skarfa. Þegar séra Páll Guðmundsson kom eitt sinn í Borgareyjar voru skarfsungar að skríða úr eggjum. Séra Páll sat á Borg á árunum 1823- 1846 (Sveinn Níelsson 1869 (1950)) svo skarfur hefur að minnsta kosti orpið í eyjunum sum þeirra ára. Hins vegar er óljóst 193
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.