Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 57
POAS OG KATLA
JÓN JÓNSSON
Nokkuð óvenjulegar eldgos-
myndanir, sem ég kaus að kenna
við eisu og fundist höfðu við
--------- Sólheima í Mýrdal og í Skóga-
heiði (Jón Jónsson 2000), vöktu hjá mér
löngun til að hreyfa við hugmyndinni um
samanburð á eldvirkni austan hafs og
vestan. Valið féll á Poas á Costa Rica og
Kötlu.
Komist hefur á hnattvíð og áratuga löng
samvinna milli íslands og Sameinuðu
þjóðanna um rannsóknir á jarðhita. Þær
hófust í E1 Salvador og náðu loks til
Miðameríkulandanna allra. Vegna þess að
þær miðuðust við raforkuframleiðslu hlutu
rannsóknirnar fyrst og fremst að beinast að
háhitasvæðunum, enda tengjast þau eld-
virkni meira eða minna beint. Eg vann því að
þessu í E1 Salvador 1969-1970 og í Nicara-
gua 1972-1974.
Jarðskjálftinn í Managua (1972) truflaði
rannsóknirnar á háhitasvæðinu sunnan í
Jón Jónsson (f. 1910) lauk fil.lic.-prófi í jarðfræði
frá Uppsalaháskóla árið 1958. Hann starfaði hjá
Raforkuinálaskrifstofunni og síðar Orkustofnun
frá 1958 til 1980 er hann lét af störfuum fyrir
aldurs sakir. Þar fékkst Jón einkum við leit að
köldu og heitu vatni og síðast við gerð jarðfræði-
korts af Reykjanesskaga. Á árunum 1969-1974
starfaði Jón á vegum Sameinuðu þjóðanna í Mið-
Ameríku og fór fjölda ferða sem ráðgjafi á þeirra
vegum, einkum til Afríkulanda. Eftir að hann lét af
störfum hefur hann haldið áfram rannsóknum,
m.a. við Eyjafjallajökul og í nágrenni við æsku-
slóðirnar í Vestur-Skaftafellssýslu. Jón Jónsson er
heiðursfélagi í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi.
Momotombo svo að þær hlutu að leggjast
niður um tíma en ég og fjölskylda mín að
flytja til Costa Rica. Dvölin þar og forvitnin
dró mig til að nota tímann til að skoða
eldfjöllin þar: Irazu (3432 m), en af því sértil
heimshafanna beggja, og svo Poas. Ég lauk
svo störfum í Nicaragua með því að stað-
setja þrjár borholur í Momotombo, og nú
hefur jarðgufustöð starfað þar lengi.
■ POAS
Fjall þetta er mikil og margflókin eldstöð sem
virk hefur verið í meira en milljón ár. Hún er
35 km norðan við San José, höfuðborg
landsins, er bungulaga til að sjá, 8-9 km í
þvermál og hæðin er 2420 m y.s. Það mun
ekki hafa verið fyrr en laust eftir 1950 að
jarðvísindamenn hófu rannsóknir á Poas og
umhverfi þess en síðan hafa allmargir lagt
þar hönd á plóg (Prosser 1983).
Á grundvelli þeirra rannsókna hefur nú
m.a. reynst mögulegt að sýna fram á að
milljón ára langri eldvirkni í Poas má skipta
niður í smærri einingar, sem hver um sig
tekur yfir um 10 þúsund ár. Jafnframt hefur
kornið í ljós að með reglubundnum hætti
hafa orðið breytingar í hátterni eld-
stöðvarinnar samfara breytingum í sam-
setningu gosefna þannig að kvikan verður
súrari með tímanum. Þegar svo er komið að
samsetning kvikunnar fer yfir 62% SiO,
verður sprenging eða sprengingar; hluti
Náttúrufræðingurinn 70 (4), bls. 231-234, 2002.
231