Náttúrufræðingurinn - 2002, Qupperneq 74
í þeim efnum hefur félaginu verið nokkuð
þröngur stakkur skorinn af framangreindum
ástæðum.
Segja má í heild að hagur félagsins hafi
verið nokkuð þröngur, en þó ekki enn
aðþrengdur, að viðfangsefni þess séu mörg
nokkuð ljós en svigriim til að fást við þau
hafi verið að ýmsu leyti ófullnægjandi. Til
úrbóta þarf að leita leiða til að bæta fjárhag
félagsins, leita þarf færa til að virkja betur
krafta fleiri félagsmanna og kynna þarf
félagið betur' fyrir almenningi og aðilum
þeim sem því er ætlað að vera til gagn-
semdar.
■ REIKJMINGAR FÉLAGSINS
Gjaldkeri HIN, Kristinn Albertsson, gerði
grein fyrir reikningum félagsins og voru þeir
samþykktir án athugasemda. Velta félagsins
var rúmlega 5 milljónir króna og var hátt í
einnar milljónar króna afgangur af rekstri. A
það er að líta að skuldbindingar vegna
tímaréttrar útgáfu Náttúrufræðingsins eru
ekki taldar með í reikningum þessum og
getur því arður eða tap í ársuppgjöri á
rekstri farið mikið eftir því hvorum megin
áramóta gjöld vegna útgáfunnar koma til
greiðslu. Fé í sjóði var tæpar 4 milljónir
króna, en eignir umfram skuldir (að með-
töldum metnum birgðum og útistandandi
kröfum) voru um 6V2 milljón króna.
Fjárhagur félagsins er því áfram nokkuð
þröngur og má það ekki við miklum
aukalegum útgjöldum ef ekki skal halla til
hins verra.
Árgjöld voru 3.600 kr. fyrir einstakling,
4.200 kr. fyrir hjón (fá aðeins eitt eintak af
Náttúrufræðingnum) og 2.400 kr. fyrir ung-
menni (23 ára og yngri).
■ DÝRAVERNDARRÁÐ OG
HOLLUSTUHÁTTARÁÐ
Fulltrúi HIN í Dýraverndarráði, Arnór Þ.
Sigfússon, flutti skýrslu um störf ráðsins á
árinu 1999. Fundir hefðu verið fáir og frekar
dauft yfir starfi ráðsins, en helstu mál hefðu
tengst dýrahaldi í atvinnuskyni, svo sem í
dýraverslunum og dýragörðum sem flest
starfi án leyfis. Auk þess hefðu komið upp
mál vegna vanhirðu á hrossum og kattamál í
Reykjavík.
Formaður HÍN las skýrslu frá Hákoni
Aðalsteinssyni, fulltrúa félagsins í
Hollustuháttaráði. Fyrsta verkefni ráðsins
var að fara yfir lög nr. 7/1998 um hollustu-
hætti og mengunarvarnir vegna nauð-
synlegra gjaldskrárbreytinga. Annað stórt
verkefni var að fara yfir mengunarreglu-
gerðir, nærri 30 talsins, sem afgreiða þurfti
með nokkru hraði.
■ LAGABREYTINGAR
Formaður HÍN, Freysteinn Sigurðsson,
kynnti tillögur stjórnar að lagabreytingum
og voru þær samþykktar samhljóða eftir
stuttar umræður. Helstu breytingar eru
eftirtaldar:
Lög félagsins heita nú „Samþykktir Hins
íslenska náttúrufræðifélags“ og endur-
skoðendur verða nefndir „skoðunarmenn
reikninga“. Er þetta hvort tveggja til sam-
ræmis við það sem nú tíðkast um félög í
landinu. Skipan stjórnar verður breytt svo,
að sjö manns eru nú í stjórn, en fimm voru
áður, og engir varamenn verða en voru tveir
áður. Felld eru út ákvæði um að birta
félagatal á fimm ára fresti og ákvæði um
ævifélaga. Upp eru tekin ákvæði um að
stjórn setur starfsreglur um starfsemi á
vegum félagsins og stjórn tilnefnir nefndir
og ráð á vegum félagsins, þegar það á við,
og tilnefnir fulltrúa í opinberar nefndir og
ráð fyrir hönd félagsins.
■ STjÓRNARKJÖR
Kjör stjórnarmanna fór fram samkvæmt
nýsamþykktum samþykktum félagsins en
bráðabirgðaákvæði voru í samþykktunum
vegna breytingar á fjölda stjórnarmanna.
Formaður, Freysteinn Sigurðsson, gaf kost
á sér til endurkjörs og var kjörinn án mót-
framboðs. Kristinn Albertsson gaf kost á
248