Náttúrufræðingurinn - 2002, Blaðsíða 75
sér til endurkjörs, auk fráfarandi varamanns,
Helga Guðmundssonar, en Þóra Elín
Guðjónsdóttir gaf ekki kost á sér né Hólm-
fríður Sigurðardóttir, fráfarandi varamaður.
Þeirra í stað gáfu Guðrún Larsen og Guðrún
Schmidt kost á sér til stjórnarkjörs og voru
þessi öll kjörin án mótframboðs. Guðrún
Schmidt var kjörin til eins árs í samræmi við
téð bráðabirgðaákvæði.
Sem skoðunarmenn reikninga gáfu kost á
sér Tómas Einarsson og Kristinn Einarsson
en til vara Arnór Þ. Sigfússon og voru þeir
kjömir án mótframboðs.
■ ÖNNUR MÁL
Fram vom lagðar tvær tillögur til ályktunar frá
stjóm HÍN og mælti Hilmar J. Malmquist íyrir
þeim. Engar fyrirspumir urðu um tillögumar og
vom þær samþykktar einróma. Tillögumar em
um Náttúmhús í Reykjavík og vöktun lífríkis
Þingvallavatns og hljóða svo:
1) „Aðalfundur Hins íslenska náttúru-
fræðifélags (HÍN), haldinn 26. febrúar 2000 í
Reykjavík, ítrekar fyrri ályktanir aðalfunda
HÍN frá 27. febrúar 1999,17. febniar 1996,11.
febrúar 1995 og 29. febrúar 1992 um málefni
Náttúruhúss í Reykjavík. HÍN harmar, hve
tregt hefur gengið að koma þessu brýna máli
heilu í höfn og hvetur hlutaðeigandi aðila til
að gera gangskör að því að efna hið fyrsta á
myndarlegan hátt til Náttúruhúss í Reykja-
vík, sem hýsi náttúrugripasafn með nútíma-
legri sýningaraðstöðu fyrir almenning.“
2) Aðalfundur Hins íslenska náttúru-
fræðifélags (HÍN), haldinn 26. febrúar2000 í
Reykjavík, ítrekar fyrri ályktanir aðalfunda
HÍN frá 27. febrúar 1999,28. febrúar 1998,1.
mars 1997 og 17. febrúar 1996 um náttúru-
farsrannsóknir á vatnasviði Þingvallavatns.
Sér í lagi eru áréttaðar tillögur HIN um
nauðsyn þess að koma á fót viðeigandi
vöktun á lífríki Þingvallavatns.“
■ FRÆÐSLUFUNDIR
Fundir þessir voru haldnir samkvæmt
áratugagamalli venju að kvöldi síðasta
mánudags í vetrarmánuði hverjum, jafnan kl.
20:30, og vom í stofu 101 í Odda, Hug-
vísindahúsi Háskóla Islands. Er Háskóla
Islands þakkað fyrir afnot af fyrirlestrasal og
hússtjórnendum í Odda fyrir aðstoð vegna
fundanna. Fundirnir voru auglýstir í félags-
bréfi HIN og í útvarpi og dagblöðum. Kann
HIN fjölmiðlum þessum bestu þakkir fyrir þá
liðsemd. Vegna mistaka fórst fyrir að aug-
lýsa fund í nóvember og sóttu hann aðeins
fjórir. Erindi það var því endurflutt í janúar
2000. Fyrirlesarar og erindi voru sem hér
segir:
25. janúar: Guðmundur Omar Friðleifsson
jarðfræðingur: Olíumyndun í setlögum við
Island. Fundinn sóttu 35 manns.
22. febrúar: Heimir Þór Gíslason, kennari á
Hornafirði: Um fjallagrös. Fundinn sótti 91
maður.
29. mars: Jórunn Harðardóttir jarðfræðing-
ur og Aslaug Geirsdóttir jarðfræðingur:
Rannsóknir á setlögum úr Hestvatni.
Fundinn sóttu 48 manns.
26. apríl: Oddur Sigurðsson jarðfræðing-
ur: Myndasýning: Dýrin og blómin smá.
Leiðbeinendur voru Erling Ólafsson skor-
dýrafræðingur og Guðmundur Halldórsson
plöntumeindýrafræðingur. Fundinn sóttu
55 manns.
25. október: Gísli Már Gíslason vatnalíf-
fræðingur: Elliðaárnar og lífríki þeirra.
Fundinn sóttu 47 rnanns.
Alls sóttu um 290 manns þessa fímm fundi
og er það góð aðsókn.
■ fræðsluferðir og
NÁMSKEIÐ
Farin var aðeins ein ferð þessu sinni,
langa ferðin á virkjunarslóðir norðan
Vatnajökuls, sem farin var 21.-25. júlí. Þátt
tóku um 100 manns. Leiðsegjendum er
þakkað fyrir framlag þeirra, Guðmundi
Jónassyni hf., forráðamönnum fyrir-
tækisins og bílstjórum þess er þakkað fyrir
einmuna lipurð og Ijúfmennsku og
aðstandendum gisti- og áfangastaða er
þakkað fyrir góðar móttökur og fyrir-
greiðslu.
249