Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 3

Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 3
Náttúrufrœdingurinn ■ 49 (4), 1979 ■ Bls. 257—320 ■ Reykjavík, júní 1980 Helgi Björnsson: Snjóflóð og snjóflóðavarnir INNGANGUR Snjóflóð liafa valdiö dauða fleiri Is- lendinga en nokkur önnur tegund nátt- úruhamfara. Um 600 mannslát af völd- um snjóflóða hafa verið skráð í 11 alda sögu þjóðarinnar. Eflaust skipta hin óskráðu hundruðum. Það sem af er þessari öld hafa um 120 manns farist í snjóflóðum. Þar við bætist gífurlegt eignatjón. Með rannsóknum má eflaust draga mjög úr tjóni vegna snjóflóða. Ef skipu- lega er unnið að því að meta snjóflóða- hættu er í flestum tilvikum auðveldara að spá um komu snjóflóða en annarra náttúruhamfara svo sem jarðskjálfta, eldgosa og vatnsflóða. Sé árvekni gætt við mat á snjóflóðahættu gefst því oft ráðrúm til að forðast hættuna með því að grípa til varnaraðgerða, t. d. loka vegum í bili, rýma byggð, hleypa niður snjóþekjum, kalla út björgunarsveitir og flytja fólk burt af hættusvæðum. Þessar varnaraðgerðir má kalla skammtíma- varnir. Ennfremur er með nútímatækni unnt á ýmsan hátt að draga úr tjóni vegna snjóflóða með því að reisa varn- arvirki, sem verja byggð og vegi til frambúðar gegn snjóflóðum, og jafnvel er unnt að minnka líkur á að flóð nái að falla úr fjallshlíðum. Þó er sums staðar ráðlegast að flytja byggð, vegi, síma- og raflínur frá hættusvæðunum. í þessari grein er rætt um orsakir snjóflóða og teknar eru saman ýmsar meginreglur, sem hafa þarf i huga þegar meta skal hvar Mkur eru á að snjóflóð falli og hvenœr þeirra er helst von. Einnig er rætt um eðli snjóflóðanna, hreyfingar þeirra, afl og skriðlengd. Mat á þessum atriðum er grundvöllur að viðbrögðum við snjóflóðahættu, bæði hvað varðar skammtímavarnir og gerð varnarvirkja gegn snjóflóðum til frambúðar. LANDSLAG OG SNJÓSÖFNUN A SNJÓFLÓÐASVÆÐUM Helst er hætta á snjóflóðum í snjó- þungu fjalllendi. Benda má á tvo landslagsþætti, sem ráða mestu um hvar snjór safnast í fjöll. Þessir þættir eru annars vegar lega fjallshlíöar fyrir þeim vindáttum, sem flytja mesta úrkomu og snjó skefur mest úr, og hins vegar hratti hlíðarinnar. Snjókoma vex venjulega með hæð yfir sjó, en vindur ræður einnig miklu um hvar snjór safnast í fjallshlíðar. Vindur dreifir ekki snjó jafnt heldur safnast hann mest saman á stöku staði og þar getur snjódýpt orðið margföld úrkom- Náttúrufræðingurinn, 49 (4), 1979 257

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.