Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 11

Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 11
eða jafnvel vikum skiptir. Hlýni þá skyndilega geta síðbúin flóð fallið þar sem blautur, eðlisþungur snjór hvílir á ósignum snjó. Á sama hátt er mikil snjóflóðahætta ef hlýnar í lok hríðar svo að bleytusnjór eða regn fellur á lausa- snjó. Spennur í snjóþekju geta einnig auk- ist skyndilega ef skafrenningur safnar snjó saman. Þurr snjór berst auðveld- lega með vindi. Ef vindur er stöðugur og styrkur hans yfir 8 m/s (kaldi eða meira) stórvex snjóflóðahættan. Snjókóf fram af fjallsbrúnum bendir til þess að snjó sé farið að skafa og setja fram í hlíðar hlé- megin. Snögg lcekkun í styrk snjóþekju Skyndilegar breytingar í styrk snjó- þekju geta orðið við snöggar veðurfars- breytingar. Þegar hefur verið nefnt að snögg hlýindi og regn ofan í nýsnævi geti valdið snjóflóðum því nýfallinn eða ósiginn snjór er léleg undirstaða, sem berekki aukið farg. Ef rignir 5—10 mm á sólarhring á nýfallinn snjó er víða hætta á snjóflóðum. Idins vegar getur vatn, sem hripar inn í snjóbreiðu, veikt styrk hennar og festu við lagmót og botn. Djúphrím, sem drekkur í sig vatn, missir allan styrk. Einnig er algengt að vatn, sem hripar niður í snjó, safnast saman ofan við hörð, vatnsheld hjarn- lög. Regn, sem fellur á frosinn snjó, frýs og bræðsluvarminn hitar fljótt snjólagið upp að frostmarki. Gamall snjór er venjulega í góðu jafnvægi og getur oft þolað miklar rigningar, því að vatn rennur gegnum hann án þess að hann missi samloðun og renni af stað sem krapaflóð. Snjóflóð geta stafað af því að lækjarsytrur og dýjavætur hafa eytt samskeytum snjóþekju við botn. Snjór getur einnig klökknað og misst festu vegna sólbráðar í suðurhlíðum, einkum undir klettabeltum, sem draga í sig sól- varma. Hœgvirkar breytingar á spennu og styrk snjóþekju Þótt flest snjóflóð falli vegna skyndi- legra breytinga á spennu eða styrk snjó- þekju falla mörg snjóflóð vegna hæg- virkra breytinga á þekjunni. Einkum á þetta við urn flekahlaup. Getur verið mjög erfitt að meta líkur á slíkum flóð- um. Það er erfiðara að mæla beint tog og styrk snjóbreiðu heldur en meta skyndilegar breytingar á þessum þátt- um. Þó má setja fram þá almennu reglu, að líklegra er að flekahlaup falli í snjó- breiðu, sem gerð er úr mörgum lögum frekar en úr einu. Hættu á slíkum hlaupum má því meta með því að kanna lagskiptingu í snjóþekjunni og fylgjast með breytingum á gerð hennar og hafa auga með því hvort sprungur hafi myndast við jaðra þekjunnar. Hvert snjólag er bæði tengt næsta lagi fyrir neðan og við jaðrana. Oftast eru aðeins nokkrar tengingar hættulega teygðar. En bresti ein þeirra vex skyndilega átak á hinar og þær geta einnig brostið. Þó má oft sjá að ein- hverjar tengingar eru nægilega sterkar til þess að halda flekunum kyrrum. Sé svo komið er samt þörf fyllstu varúðar. EÐLI SNJÓFLÓÐA Við höfum nú rætt um mat á snjó- flóðahættu og snúum okkur að því að ræða hvers eðlis hættan er. Það hve hættuleg snjóflóð eru má marka af þeim kröftum, sem eru að verki í flóðunum. 265
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.