Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 42
3. mynd. Grein af blæösp
viö Jarðfræðahús (At-
vinnudeild) Háskólans.
öspin er ættuð frá Grund i
Eyjafirði.
lítill en fagur blæasparlundur. Undir
Ártúnsbrekku i Reykjavík vex falleg
blæösp, ættuð frá Garði, og breiðist út
með rótarsprotum. Hafa nokkrir Reyk-
víkingar fengið rótarteinunga þaðan.
Fagurvaxna allháa blæösp gefur að líta
við Stýrimannastíg. Blæösp frá Grund
vex í lundi við Jarðfræðahús Háskólans
(gömlu Atvinnudeild) og sennilega víð-
ar. Blæösp hefur og verið gróðursett
innan um birki i brekku í Eyfirðinga-
lundi á Þingvöllum fyrir allmörgum ár-
um (Eiríkur Hjartarson). Nyðra vaxa
einhverjar stærstu blæaspirnar við
Hallbjarnarstaði í Reykjadal. Þetta eru
tvær hríslur ættaðar frá Garði. Þær
standa við suðurgafl hússins, sem er tví-
lyft, og mega heita jafnháar því.
Blæöspin virðist hvarvetna beinvax-
in, þar sem vaxtarskilyrði eru góð og
hún fær að dafna i friði, og það þótt hin
innlenda sé komin út af kræklum, jarð-
lægum að mestu, þar sem sauðfjárbeit
hefur haldið henni niðri. Lang vöxtu-
legust er „villiöspin“ i Egilsstaðaskógi,
en þar er skjól og hún hefur um skeið
fengið að vaxa í friði.
HEFUR BLÆÖSPIN BORIÐ
FRÆ Á ÍSLANDI?
Blæöspin virðist eingöngu breiðast út
með rótarsprotum hér á landi, a. m. k. á
296