Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 10
stafað af því að snjó kyngi niður eða
skafrenningur hlaði upp sköflum. Einn-
ig getur fall snjóhengju eða grýlukertis,
steinkast eða farg skíðamanna komið af
stað snjóflóði ef þekjan er mjög óstöðug.
Flest snjóflóð falla meðan mikiö snjóar,
eða rétt á eftir (sjá Töflu I). Falli 20^-30
cm þykkt snjólag á sólarhring er venju-
lega mikil hætta á snjóflóðum. Þegar
snjór fellur svo hratt hefur hið nýja
snjólag ekki undan að setjast og auka
styrk sinn. Einnig getur yfirþungi snjó-
jækjunnar orðið svo mikill að djúp-
stæður veikleiki í garnla snjónum bresti.
Meginreglan við mat á snjóflóðum er
því: Verið viðbúin snjóflóðum meðan
vetrarhríðar ganga yfir og rétt eftir j)ær.
Ef ekki er djúpstæður veikleiki i snjó-
breiðunni (t. d. djúphrím) minnkar
hættan þegar hinn nýfallni snjór nær að
setjast og verða stöðugri. Nýfallinn snjór
verður venjulega stöðugur ef hann sest
meira en 15% á dag. Hraði jaessa sigs fer
aðallega eftir hitastigi. Snjór sest hratt.ef
lofthiti er frá -r- 1°C til -í-50C. Þegar loft-
hiti í hríðarveðri er nálægt frostmarki
stendur hættutímabilið aðeins í nokkrar
klukkustundir eftir að hríð lýkur, snjór-
inn sest fljótlega og aukin spenna dreif-
ist um jnekjuna. En snjói í miklu frosti og
kuldar haldast sest snjórinn lítið og
hættutímabil getur varað svo dögum
TAFLA I. Snjósöfnun og snjóflóð. (M. de Quewain 1972).
Niðurstöður frá Sviss, sem gilda við vindhraða upp að 4 m/s (gola) og lofthita +2°C til
-r 10°C
Heildarþykkt
nýsnævis, sem
hefur fallið i 3 Snjóflóð sem falla:
daga á upptaka-
svæði flóða:
Upp að 10 cm Sjaldgæf; mjög staðbundnar hreyfingar snjóþekju, einkum kóf-
hlaup.
10—30 cm Einstök staðbundin flekahlaup. Tíð lausasnjóflóð.
30—50 cm Tíð staðbundin flekaflóð í halla yfir 35°.
50—80 cm Flekahlaup falla víða í halla 25—30°.
Almenn snjóflóðahaetta ofarlega í hlíðum og einstök stórflóð berast
niður í dalbotna, einkum í velþekktum hlauprásum.
80 1 20 cm I íð stórhlaup berast niður i dalbotna, einstaka sinnum utan kunnra
hlaupfarvega.
Yfir 120 cm Einstakar aðstæður. Sjaldgæf og áður óþekkt stórflóð geta fallið.
A thugasemd:
Við lofthita undir -r 10°C er sums staðar reiknað með heildarsnjókomu i 5 daga i stað 3. Við
vindhraða yfir 4 m/s er við mat á snjóflóðum hlémegin í hlíðum reiknað með snjóflóðum
einu eða tveimur þrepum neðar í skránni, eftir því hver vindhraðinn er og hve lengi
snjókoman varir.
Tilsvarandi tafla hefur ekki verið gerð hér á landi en meðan svo er mætti nota þessa töflu til
hliðsjónar við mat á snjóflóðahættu.
264